Kia með methlutdeild í Evrópu

- Kia Sportage mest seldi bíll ársins 2022 á Íslandi

Kia jók markaðshlutdeild sína í Evrópu um 5% milli ára og er í dag með 4,8% hlutdeild seldra bíla á Evrópumarkaði.

image

Kia Sportage.

Kia hefur verið einn vinsælasti bílaframleiðandi Íslendinga undanfarin ár og var Kia Sportage mest seldi bíll ársins 2022 hér á landi og EV6 valinn bíll ársins meðal bílablaðamanna á Íslandi.

(fréttatilkynning frá Öskju)

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is