Þá er það bara komið; undrið. MG Marvel R Electric. Marvel þýðir nefnilega undur og það er skemmtilegt. Persónulega finnst mér hann undurfagur á að líta en það er vissulega smekksatriði.
Þegar ég kom og sótti bílinn upp á Sævarhöfða beið Marvel fyrir utan, í „gangi“ og það var virkilega notalegt að setjast inn í hlýjan bílinn á þessum kalda og dimma vetrardegi.
Ekki nóg með það heldur var útvarpið stillt á X-ið og eðalsmellur í spilun. Maður er nú með grímu þessi misserin og mátti ég varla við því að færu margar grímur færu að renna á mig en svona byrjaði þetta nú ljómandi vel hjá okkur Marvel.
Hver er þetta eiginlega?
Það hafa eflaust fáir áhuga á að lesa mikið um skilgreiningu blaðamanns á fegurð bílsins og þess vegna fylgja hér myndir sem við mæðgin tókum af Marvel í brakandi froststillu.
Lengi vel í Oxford en nú í London. Í dag er MG dótturfélag SAIC Motor UK sem er að hluta til í eigu kínverska ríkisfyrirtækisins SAIC Motor.
Af hverju er ég að fjalla um þetta? Jú, það er ástæða fyrir því. Góð og gild. Svo góð að úr varð pistill sem lesa má hér og fjallar um tengingar við Kína.
Marvel er stærsti bíll MG og á meðal „keppinauta“ hans á markaði má nefna Skoda Enyaq og VW ID.4, ef það hjálpar til við að átta sig á stærðinni.
Verðið er frá 6.499.000 kr. (Luxury útfærsla) en sá bíll sem hér er fjallað um er fjórhjóladrifinn og nefnist útfærslan Performance. Hann kostar 7.199.000 kr. Báðar gerðir eru með 70 kWh rafhlöðu og á hleðslunni gæti Marvel komist 402 kílómetra við bestu skilyrði.
Alltaf glaður og gott að ganga um
Þegar horft er framan á bílinn er ekki laust við að Marvel virðist brosa til manns. Jafnvel eilítið kankvís. Síkátur og í sídrifi.
Auðvitað fer maður ekki á röltið inni í bílnum og það er alls ekki það sem orðin „að ganga um“ vísa til.
Heldur er það stóra atriðið: Hvernig er að komast inn í bílinn og út úr honum, hreyfa sig, setja á sig beltið og allt þetta hefðbunda sem maður gerir. Það er ljómandi gott að athafna sig í honum Marvel.
Frábært Bose 9 hljóðkerfi með 9 hátölurum er í útfærslunni sem var prófuð en allt um búnað í gerðunum tveimur má finna hér.
Eldsnöggur en hægur á einn hátt
Þó er það eitt sem truflaði mig við „undrið“. Það er hversu viðbragðið í snertiskjánum er lélegt. Viðbragðið er auðvitað til staðar en mikið ósköp virðist það taka langan tíma fyrir boðin að komast á leiðarenda.
Eflaust er þetta eitthvað sem venst, eigi maður MG Marvel, en fyrir þau okkar sem aka ýmsum bílum þá er þetta pirrandi fyrst í stað.
Annars eru ekki margar ástæður til að pirrast um borð í Marvel. Hann er lúxusvagn, fallegur, brosandi og vinnur vel og er svo vel innréttaður að það liggur við að mann langi til að fara í sparifötin til að vera í stíl við hann.
Ljósmyndir: Óðinn Kári og Malín Brand
Útfærsla | Drif | Girkassi | Eldsneyti | Tog-Hö. | Stærð rafhlöðu | Drægni allt að | VERÐ FRÁ. | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Luxury
| Afturhjóladrif | Sjálfskipting | Rafmagn | 410 - 177 | 70 kWh | 402 km | ||
Performance
| Fjórhjóladrif | Sjálfskipting | Rafmagn | 665 - 288 | 70 kWh | 370 km |
Aðrar umfjallanir
Við erum með einn nýjasta rafbílinn á íslenskum bílamarkaði í reynsluakstri í dag. Þetta er hinn nýi ID.3 frá Volkswagen, sem er í prófun núna...
Jeep Cherokee Longitude Luxury enn betur búinn og fágaðri en áður – en „jeppinn“ er enn til staðar
Það er sannast sagna að nýr Renault Megane E-Tech var farinn að vekja athygli okkar löngu áður en hann kom hingað til lands...
Við vorum reyndar búin að heyra af þessum bíl nokkru áður en við tókum hann til prufu. Það var svo fyrir um hálfum mánuði að við reynsluókum þessum huggulega fólksbíl...