Reynsluakstur: Toyota BZ4X, árgerð 2022
Umboð: Toyota í Lublin, Póllandi

Góðir aksturseiginleikar, afl og útlit
Bakkmyndavél, skjáir og grafík

Tvö hjól undir bílnum – kannski!

Langþráð rafmögnuð Toyota hefur litið dagsins ljós en þó ekki alveg enn. Frá því að bíllinn kom fyrst á markað hefur ekki mátt aka honum vegna innköllunar.

Eitthvað sem bílaframleiðandi ætti ekki að láta hanka sig á í framleiðsluútgáfu bílsins.

image

Toyota BZ4X er ansi huggulegur bíll.

Ekkert blaður um okkur

Í kjölfarið veltir maður fyrir sér einurð þessa risa bílaframleiðanda við framleiðslu á þessum rafmagnsbíl enda hefur ferlið tekið langan tíma og verið grýtt á köflum.

Bíllinn er hins vegar samstarfsverkefni Toyota og Subaru enda aldrifsbúnaður bílsins þaðan.

Þegar forstjóri Toyota segir opinberlega að rafmagn sé nú ekkert endilega það sem koma skal í bílaheiminum, fallast einföldum bílaáhugamönnum eins og okkur hendur. Veltir maður jafnvel fyrir sér áhugaleysi Toyota á verkefninu.

image

Hægt er að fá bílinn með glansáferð á plastinu í kringum hjólin.

Það hefur ekki verið auðhlaupið að fá að reynsluaka Toyota BZ4X. Við fórum því alla leið til Póllands til að fá að prófa og þá eftir krókaleiðum – því Toyota er ekkert upp með sér að bloggarar, og bílagagnrýnendur séu eitthvað að blaðra um það sem þeir hafa ekkert vit á.

En að bílnum sjálfum

Toyota BZ4X er glæsilegur bíll og verulega flottur rafdrifinn fólksbíll sem boðinn er bæði með fram- og aldrifi. Framdrifsbíllinn er um 204 hestöfl og togar um 266 Nm á meðan aldrifsbíllinn gefur 218 hestöfl og togar 338 Nm.

image

Smart ljósabúnaður, að sjálfsögðu LED.

Við fengum bílinn til afhendingar í útjaðri Lublin í Póllandi og nutum þess að aka um sveitavegina í kringum héraðið.

image

Toyota BZ4X samsvarar sér vel og liggur vel á vegi.

Mælaborðið er með ferskum andblæ og tekur vel á móti manni þegar sest er undir stýri.

Stór miðjuskjár kemur vel út í hönnun mælaborðsins. Hægt er að tengja tvo síma samtímis við margmiðlunarkerfið í bílnum en það hefur verið endurbætt talsvert frá fyrri bílum.

image

Stóri skjárinn er nokkuð skýr og hraðvirkur.

Bakkmyndavélin er óskýr og nær ekki yfir allan skjáinn – sem er skrítið því skjárinn er stór og nokkuð skýr.

image

Ekkert hanskahólf er í bílnum - heldur slatti af svona geymslurýmum.

Ekkert hanskahólf

Það er nú kannski bara allt í góðu lagi. Góð geymsluhólf eru í hurðum og milli sæta og handbókin góða er best geymd á netinu.

image

Hurðir opnast ágætlega og inn- og útstig er gott.

image

Snyrtilegur frágangur

Farangursrýmið á reynsluakstursbíl var með setti af Toyota mottum sem klæddu rýmið að innan. Mjög skemmtilegur kostur og verndar teppin í farangursgeymslunni.

image

Gott að aka

Toyota BZ4X er glæsilegur bíll sem mjög gott er að aka. Það fer vel um mann í sætum bílsins og hann er prýðilega hljóðeinangraður.

Gott afl er í bílnum og hann stýrir vel.

Hann leggst ekki í beygjurnar og er nokkuð stinnur á vegi – en alls ekki neitt of mjúkur. Þessi bíll hentar án efa breiðum hópi notenda – bæði sem fjölskyldubíll til borgarnotkunar eða sem ferðabíll.

image

Farangursrýmið er vel frá gengið og rúmar 452 lítra.

Helstu tölur:

Verð frá 7.350.000 kr. og upp í 9.350.000 kr.

Rafhlaða: 73 kWh.

Drægni: 415-511 km. eftir gerð.

0-100 km á klst.: 6.9 sek.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is