Ford Expedition er með meiri akstursaðstoð en nokkur annar bíll í sama stærðarflokki.
Stórglæsileg hönnun fangar athygli og kraftmiklar vélar skila spennandi akstri. Þú ert umkringdur nýjustu tækni um leið og þú sest inn í bílinn, notendavænni tækni sem skilar sér í öruggari akstri.
Árið 2022 fékk Ford Expedition uppfærslu. Stíllinn á framendanum var endurhugsaður ásamt felgum og inréttingunni sem svipar nú til innréttingarinnar í 2021 árgerð af Ford F-150. Í innréttingunni er núna hægt að velja stafrænt mælaborð og 12" eða 15" SYBNC afþreyingarkerfi með snertiskjá og SiriusXM gervihnattaútvarpi. Sérstök áhersla er lögð á nýja Timberline-útfærslu í Ford Expedition og í henni er svokallaður off-road stíll bæði að innan og utan, þar með talið á sætum og felgum. Ný Limited Stealth Performance Package-útfærsla verður aðeins í boði í takmörkuðu upplagi en henni fylgir öflugri 440 hestafla mótor og einstakur stíll á ytra byrði bílsins.
Innra rými Ford Expedition umvefur alla lúxus þar sem hvert smáatriði er úthugsað með alla farþega bílsins í huga. Gott rými hjá öllum farþegum og er þriðja sætisröðin er með frábært fótarými. Einnig eru fleiri möguleikar til að koma hlutum og farangri haganlega fyrir.
Um er að ræða 3,5 lítra EcoBoost bensínvél með sjálfskiptingu sem skilar 375 hestöflum. Upplifðu kröftugasta Expedition vélina sem gerð hefur verið. Hún samanstendur af tvennskonar tækni: Bein innspýting hjálpar við að hámarka aflið frá hverjum einasta bensíndropa sem og tvöfaldar túrbínur skila gríðarlegri viðbótarorku þegar þess er þörf.