Það sem koma skal. Kynntu þér crossover rafbílinn okkar sem er án leðurs og með innbyggðri Google þjónustu. Pantaðu hann á netinu í dag.*

*Gengið verður frá pöntuninni hjá söluaðila í samræmi við skilmála hans.

*Gengið verður frá pöntuninni hjá söluaðila í samræmi við skilmála hans.

Framhluti á Fjord blue lituðum Volvo C40 Recharge.
Fjord blue litaður Volvo C40 Recharge með hleðslusnúru.
Volvo C40 Recharge er með fyrsta flokks Harman Kardon-hljóðkerfi.

Hreint hjarta í öflugum skrokki. Kynntu þér crossover rafbílinn okkar.

Allt að

550

km

Drægni á rafmagni

4,7

sek.

Hröðun (0–100 km/klst.)

408

hö.

KRAFTUR

27

mín.

Hraðhleðsla 10–80%

Færri hleðslumínútur, fleiri kílómetrar

Næsta kynslóð rafknúnu aflrásanna okkar eykur getu C40 Recharge-bílsins og skilar þér meiri drægni á rafmagni og skjótari hraðhleðslu með jafnstraumi (DC).

Engar málamiðlanir

C40 Recharge neyðir þig ekki til að velja á milli afls og samfélagslega ábyrgs aksturs. Fáðu þér sæti, aktu af stað og njóttu aksturs með einu fótstigi, mjúkrar hröðunar og aldrifs – án þess að losa neinn útblástur.

Lipurð afturhjóla

C40 Recharge fæst með eins eða tveggja mótora aflrás. Aflrásin sem nú knýr afturhjóladrifið eykur afl og lipurð bílsins til að gera aksturinn enn skemmtilegri.

Tölurnar eru til bráðabirgða og fengnar úr mati og útreikningum sem Volvo Cars gerði fyrir C40 Recharge með tveimur mótorum og því er ekki hægt að ábyrgjast þessar niðurstöður. Raundrægni og rauneldsneytisnotkun við raunaðstæður fara eftir aksturslagi og öðrum ytri áhrifaþáttum. Hleðslutími getur verið mismunandi eftir aðstæðum og ræðst af þáttum eins og hitastigi utandyra, hitastigi rafhlöðunnar, hleðslubúnaði, ástandi rafhlöðunnar og ástandi bílsins. Endanleg vottun ökutækis bíður staðfestingar. Skoðaðu ítarlega tæknilýsingu til að kynna þér aðrar aflrásir í boði.

Leyfðu þér að vera til. Nútímaleg hönnun og leðurlaust innanrými setur svip á C40 Recharge.

Meira af því sem þú vilt helst. Njóttu til fullnustu snjallbúnaðar og stoðtækni.

Innbyggt Google
Lofthreinsitæki
Harman Kardon Premium Hljómtæki
360° myndavél
Umferðarvari (Cross traffic alert)
Volvo Cars appið

Hvað viltu fá að vita um C40 Reharge rafbílinn?

Fyrstu skrefin til að panta C40 Recharge á netinu
Hvað merkir það að ég geti sett af stað pöntunarferli fyrir C40 Recharge rafbíl á netinu?

Þú getur sett saman bíl eftir þínu höfði, skoðað mismunandi fjármögnun fyrir kaup bílsins og farið yfir samantekt pöntunarinnar. Ef pöntunin er eins og hún á að vera geturðu fyllt út upplýsingar um þig, valið söluaðila og sent pöntunina. Þú færð staðfestingu í tölvupósti með nauðsynlegum upplýsingum og söluaðili mun hafa samband innan eins virks dags til að ljúka lokaskrefunum við pöntun nýja bílsins þíns.

Er hægt að bæta pökkum, aukabúnaði eða aukahlutum við eftir að netpöntunin hefur verið send?

Já. Eftir að þú sendir beiðnina hefur söluaðilinn samband við þig. Þú getur bætt við pökkum, aukabúnaði og aukahlutum sem í boði eru áður en þú klárar pöntunina. Hafðu í huga að við þetta kann verðið að hækka.

Hvaða fjármögnun er í boði?

Það er alltaf í boði að kaupa eða leigja bílinn. Verðið sem birt er á vefsvæðinu okkar er leiðbeinandi verð. Gengið verður frá endanlegu verði hjá söluaðilanum. Ekki þarf að greiða fyrirframgreiðslu eða innborgun á netinu. Söluaðilinn mun kynna þér greiðsluskilmálana eftir að þú hefur valið fjármögnunarleiðina

Þarf ég að fara til söluaðila til að ljúka pöntun og skrifa undir samning?

Já. Við erum að vinna að þróun greiðslulausnar fyrir netið en þangað til því verki er lokið þurfið þið söluaðilinn að ljúka pöntunum og skrifa undir augliti til auglitis.

Hef ég gert bindandi samkomulag eftir að ég sendi pöntunina inn?

Nei. Gögnin þín eru eingöngu notuð til að vinna úr pöntuninni þinni.

Get ég sett núverandi bílinn minn upp í?

Þetta geturðu rætt við söluaðilann.

Get ég sent inn pöntun á netinu fyrir aðrar gerðir og vélar?

Já, þú getur pantað XC40 Recharge og C40 Recharge rafmagnsbíla á netinu. Ef þú hefur áhuga á öðrum gerðum eða vélum er næsti söluaðili tilbúinn að setja saman álitlegt tilboð fyrir þig.

Get ég bókað reynsluakstur á bílnum?

Já. Hafðu samband við næsta söluaðila til að bóka reynsluakstur.

Hvaða eignarhaldsvalkostir eru í boði?

Við höfum gert það auðveldara að eiga rafmagnaðan C40 Recharge með sveigjanlegum kaup- og leigumöguleikum. Þú getur greitt bílinn að fullu við afhendingu eða nýtt þér ýmsa fjármögnunarmöguleikana.

Er C40 Recharge rafbíllinn einnig í boði fyrir flotasölu?

Hafðu samband við flotasöludeild okkar í Brimborg. Starfsfólk hennar getur svarað spurningum þínum og rætt þá kosti sem eru í boði.

Hleðsla rafhlöðu og akstursdrægni
Hversu langt get ég ekið áður en ég þarf að hlaða rafhlöðuna í C40 Recharge rafbílnum?

Volvo Cars áætlar að fullhlaðin rafhlaða geti skilað allt að 507 km drægi (tveir mótorar) eða 476–533 km (einn mótor) í blönduðum akstri.* Þessar bráðabirgðatölur eru enn í vottunarferli og verða uppfærðar þegar vottuð gögn um drægni verða tiltæk.

Aksturslag og aðrar aðstæður hafa áhrif á raunverulegt drægni, til dæmis hitastigið utandyra, veðrið, vindur, landslag og vegaskilyrði. Rafmagn sem notað er fyrir ýmsa virkni bílsins, til dæmis stillingu hitastigs, hefur einnig áhrif á drægni. Ein leið til að auka drægni er að forstilla innanrými bílsins á meðan hann er í hleðslu svo hitastigið í farþegarýminu sé viðeigandi þegar þú sest inn í hann.

* Tölurnar eru til bráðabirgða og fengnar úr mati og útreikningum sem Volvo Cars gerði og því er ekki hægt að ábyrgjast þær. Raundrægni og rauneldsneytisnotkun við raunaðstæður fara eftir aksturslagi og öðrum ytri áhrifaþáttum. Endanleg vottun ökutækis bíður staðfestingar.

Hvaða tímalengd get ég búist við þegar ég hleð heima?

Hleðslutíminn veltur á tegund hleðslubúnaðar og rafmagni heimilisins. Hefðbundin hleðslusnúra með heimilistengi er viðbótarsnúra. Það tekur um það bil 8–76 tíma að hlaða tóma rafhlöðu upp í 100% með þessari snúru, allt eftir mörkuðum.

Fyrir reglulega og tiltölulega styttri hleðslu heima við mælum við með þriggja fasa 11 kW hleðslustöð. Með slíkum búnaði geturðu hlaðið á um það bil 7–8 klukkustundum (úr tómri rafhlöðu í 100 prósent), eða um 50–60 km drægni á klukkustund.

Athugaðu: Hleðslutími getur verið mismunandi eftir aðstæðum og getur oltið á þáttum eins og hitastigi utandyra, hitastigi rafhlöðunnar, hleðslubúnaði, ástandi rafhlöðunnar og ástandi bílsins.

Hvað þarf ég að eiga til að hlaða C40 Recharge rafbílinn auðveldlega og örugglega heima fyrir?

Hefðbundin hleðslukapall með heimilistengi fylgir með bílnum. Fyrir tiltölulega hraðari og þægilegri hleðslu heima fyrir, mælum við með að setja upp þriggja fasa 11kW hleðslustöð.

Hvað kostar að hlaða rafhlöðuna í C40 Recharge rafbílnum?

Rafmagnskostnaður er breytilegur eftir aðstæðum á hverjum stað, en kostnaðurinn getur verið minni en kostnaður vð bensín eða dísilolíu. Minni eldsneytiskostnaður er einnig ein af mörgum ástæðum til að skipta yfir í rafbíl. Og ef þú vilt spara enn meira geturðu forstillt C40 Recharge-rafbílinn á að hlaða á tímum þegar rafmagnið kostar minnst sem er yfirleitt á nóttunni.

Get ég farið á C40 Recharge rafbílnum í langferð?

Þessi crossover rafbíll er fullkominn í þægilegar langferðir. Rafhlaðan tekur mikla hleðslu, sem þýðir að þú þarft engar áhyggjur að hafa af drægni. Ef þörf er á hleðslu á leiðinni geturðu gert það á hleðslustöð með riðstraumi (AC) eða hraðhleðslustöð með jafnstraumi (DC). Á 200 kW hraðhleðslustöð með jafnstraumi (DC) er hægt að hlaða rafhlöðuna úr 10 í 80 prósent á um það bil 27 mínútum (eða um það bil 80–100 km drægi á 10 mínútum) – sem passar akkúrat til að hvíla sig eða fá sér að borða á leiðinni.*

* Tölur yfir hleðslutíma eru til bráðabirgða og fengnar úr mati og útreikningum sem Volvo Cars framkvæmdi og því er ekki hægt að ábyrgjast þær. Hafðu einnig í huga að hleðslutími kann að vera breytilegur og ræðst af þáttum á borð við hitastig utandyra, hitastig rafhlöðu, hleðslubúnað, ástand rafhlöðu og ástand bíls. Endanleg vottun ökutækis bíður staðfestingar.

Hver er fljótlegasta leiðin til að hlaða C40 Recharge rafbílinn á löngum ferðum?

Fljótlegasta hleðslan er í boði á hraðhleðslustöðvum með jafnstraumi (DC). Hraðasta mögulega hleðsla næst með því að takmarka hleðslustöðu bílsins við 80 prósent. Þetta styttir hleðslutímann vegna þess að síðustu 20 prósent hleðslunnar taka lengsta tímann. Hleðsla rafhlöðunnar úr 10 í 80 prósent á 200 kW hraðhleðslustöð með jafnstraumi (DC) tekur þannig aðeins um það bil 27 mínútur.* Ef þörf krefur, t.d. til að komast á áfangastað eða næstu hleðslustöð, er aftur á móti hægt að hlaða rafhlöðuna upp í 100 prósent með því að nota stillingarnar á miðjuskjánum í bílnum.

* Tölur yfir hleðslutíma eru til bráðabirgða og fengnar úr mati og útreikningum sem Volvo Cars framkvæmdi og því er ekki hægt að ábyrgjast þær. Hafðu einnig í huga að hleðslutími kann að vera breytilegur og ræðst af þáttum á borð við hitastig utandyra, hitastig rafhlöðu, hleðslubúnað, ástand rafhlöðu og ástand bíls. Endanleg vottun ökutækis bíður staðfestingar.

Hvernig hjálpar bíllinn mér að finna næstu hleðslustöð?

Í löndum þar sem Google Map birta upplýsingar um hleðslustöðvar er hægt að finna almenningshleðslustöðvar á korti á miðskjá bílsins eða í snjallsímaforriti. Þar geturðu einnig valið kjörhleðslustöðvar og fengið leiðsögn að þeim.

Er hægt að skipta um rafhlöðu?

Ef skipta þarf um rafhlöðu eða rafhlöðueiningar er hægt að gera það, alveg eins og með hvern annan tæknilegan hlut í bílnum.

Hvernig hefur rafhlaðan áhrif á öryggi við árekstur?

Rafhlaðan er 500 kg að þyngd sem þarf að taka tillit til við árekstur – bæði fyrir farþega bílsins og aðra bíla. Rafhlaðan þarf einnig sérstaka vernd til að forðast skaðlegan leka eftir árekstur. Með því að nota ýmsar nýjar öryggislausnir hafa verkfræðingar Volvo Cars hannað C40 Recharge með allar þessar áskoranir í huga.

Tengingar, upplýsingar og afþreying
Hvaða forrit og þjónusta frá Google eru innbyggð í C40 Recharge?

C40 Recharge rafbíllinn er með innbyggt Google Maps, Google Assistant og Google Play.

Er Volvo C40 Recharge með Apple CarPlay?

Já, Apple CarPlay er staðalbúnaður í C40 Recharge-rafbílnum.*

* Aðeins er hægt að nota Apple CarPlay með iPhone af gerð 5 eða nýrri. Apple CarPlay og iPhone eru vörumerki Apple Inc.

Er stafræn þjónusta í áskrift?

Já, fjögurra ára aðgangur að þjónustunni er innifalinn. Að þeim tíma liðnum er hægt að framlengja áskriftina ef þú vilt halda áfram að nota þjónustuna.

Hvenær hefst áskriftin að stafrænu þjónustunni og hvað gildir hún lengi?

Áskriftin gildir í allt að fjögur ár. Ef um nýjan bíl er að ræða hefst áskriftin við afhendingu frá söluaðila. Áskriftin er tengd bílnum og ef hann er seldur færist hún yfir á næsta eiganda/notanda.

Eru gögnin sem þarf til að nota stafræna þjónustupakkann innifalin?

Já. Öll gögn eru innifalin fyrstu fjögur árin. Þetta á við um leiðsögn og raddaðstoð, sem og niðurhal og notkun á öðrum forritum (t.d. tónlistarstreymi). Eftir þann tíma er hægt að framlengja þjónustuna með áskrift.

Farangursrými og dráttargeta
Hver er burðargeta C40 Recharge rafbílsins?

Snjöll rafhlöðuhönnun gerir að verkum að allir farþegar hafa jafnmikið pláss og í venjulegum bíl. Þetta býður einnig upp á einstakan sveigjanleika og snjallar geymslulausnir. Farangursrýmið aftur í rúmar 413 lítra, að meðtöldu geymsluhólfinu undir gólfinu. Rafhlaðan liggur í rýminu undir gólfi farangursgeymslunnar, en á móti kemur geymslurými undir vélarhlífinni þar sem finna má pláss fyrir hleðslusnúrur og aðra hluti sem þú þarft ekki að nota oft en vilt samt hafa við höndina ef farangursgeymslan er full.

Hvað get ég dregið mikið með C40 Recharge rafbílnum?

Að okkar mati áttu að geta ekið eingöngu á rafmagni án þess að þurfa að fórna fjölhæfni sem hentar daglegu lífi. Þess vegna er dráttargeta C40 Recharge Twin allt að 1800 kg.

Viðhald, ábyrgð og þjónusta
Hvaða ábyrgð er á Volvo Cars rafhlöðunni?

Rafhlöðuábyrgð Volvo Cars er 8 ár eða 160.000 km, hvort heldur sem gerist fyrst, að því tilskildu að bíllinn og rafhlaðan sé viðhaldið og notuð í samræmi við ráðleggingar Volvo Cars.

Hversu mikið viðhald og þjónustu þarf C40 Recharge rafbíllinn?

Rafmótorarnir eru innsiglaðir út endingartímann og þurfa ekkert viðhald. Þannig að miðað við bensín-/dísilbíla þarfnast C40 Recharge rafbíllinn mun minna viðhalds, sem getur skilað sér í lægri rekstrarkostnaði.

Sjálfbærni C40 Recharge
Er kolefnisspor C40 Recharge á endingartímanum minna en fyrir sambærilegan bíl með hefðbundinni vél?

Á endingartíma bíls er kolefnisspor bíls sem notar eingöngu rafmagn minna en bíls með hefðbundinni vél. Hins vegar veltur sú vegalengd sem þarf að aka rafbíl til að hann losi minna kolefni en bíll með hefðbundinni vél að miklu leyti á því hvernig rafmagnið sem notað er til að knýja bílinn er framleitt. Ef rafbíll er hlaðinn með endurnýjanlegri orku þarf eingöngu að aka 49.000 km til að ná þeim punkti, en 110.000 km ef notað er rafmagn af blönduðum uppruna samkvæmt heimsmeðaltali. Við hvetjum þig til að knýja rafbílinn þinn með rafmagni úr endurnýjanlegum orkugjöfum þegar þess er kostur.

Við leggjum mikla áherslu á gagnsæi hvað varðar kolefnisfótspor rafbílanna okkar. Lífsferilsmat C40 Recharge er að finna hér.

Hvernig get ég vitað að rafhlaðan í bílnum hefur verið framleidd á umhverfisvænan og samfélagslegan hátt?

Hvernig get ég vitað að rafhlaðan í bílnum hafi verið framleidd á umhverfisvænan og samfélagslega ábyrgan hátt? Svar: Volvo Cars leggur áherslu á rekjanleika til að hægt sé að tryggja að eigendur Volvo-rafbíla geti ekið um í þeirri vissu að hráefni rafhlöðunnar komi frá ábyrgum uppruna. Innleiðing blockchain-tækni eykur rekjanleikann til muna í kóbaltbirgðakeðjunni okkar. Blockchain-tæknin, eftirlit á námasvæðum, GPS-rakning, aðgangsstýringar, vottaðir flutningsaðilar, andlitsgreining, notkun persónuskilríkja og tímarakning tryggja saman rekjanleika hráefna frá námu til bílaverksmiðju.

Volvo Cars vinnur náið með birgjum við að auka sjálfbærni vara sinna og þjónustu, þar á meðal með því að tryggja ábyrgar birgðakeðjur og með skilvirkri nýtingu auðlinda. Við leggjum áherslu á ábyrga vinnslu steinefna og málma og fylgjum leiðbeiningum OECD um ábyrgar birgðakeðjur steinefna frá átaka- og áhættusvæðum. Af þeim sökum krefjumst við þess af rafhlöðubirgjum okkar að þeir styðji af heilum hug við gagnsæi kóbaltbirgðakeðju okkar og leggi áherslu á fullan rekjanleika.

Sjálfbærni er lykilatriði við mat og val á birgjum. Við höfum eftirlit með núverandi birgjum og fylgjum því eftirliti eftir með úttektum frá þriðja aðila. Við krefjumst þess einnig af rafhlöðubirgjum okkar að þeir lágmarki losun koltvísýrings við framleiðslu, þar á meðal með notkun endurnýjanlegrar orku. Allir birgjar okkar hafa samþykkt siðareglur Volvo Cars fyrir samstarfsaðila, þar sem áhersla er m.a. lögð á mannréttindi, þar á meðal réttindi launafólks.

Fullkomlega rafknúið líf

Uppgötvaðu kosti þess að aka Volvo Recharge bíl og fáðu frekari upplýsingar um rafvæddar samgöngulausnir.

Sparnaður og kostnaðarávinningur

Hvað er hægt að spara með því að kaupa og reka rafbíl?

Að hlaða Volvo

Hversu oft þarf ég að hlaða rafbíl og hvað tekur það langan tíma?

Volvo drægnisrannsóknir

Hver er drægni Volvo rafbíls og hvaða þættir hafa áhrif á drægni?

Búnaður sem er sýndur er hugsanlega ekki staðalbúnaður eða í boði með öllum útfærslu- eða aflrásavalkostum.

Google, Google Play og Google Map eru vörumerki Google LLC.