Verðvakt
Þú getur sett af stað verðvakt sem fylgist með verðbreytingum og lætur þig vita ef verðið á draumabílnum lækkar eða hagstæð tilboð bjóðast.
- Þú getur sett af stað verðvakt sem fylgist með verðbreytingum og lætur þig vita ef verðið á draumabílnum lækkar eða hagstæð tilboð bjóðast.
Um vefinn
- Fyrir kaupendur
Allir verðlistar á einum stað í gagnagrunni sem einfaldar leit, auðveldar framboð og bætir upplifun notenda bílaumboða.
- Fyrir bílaumboð
Við höfum sérsmíðað öflugt tæki til að greina eftirspurn ökutækja og ná beinni snertingu við skráða notendur sem fylgjast með verði og verðbreytingum ákveðinna tegunda.
Skilmálar
- Rekstaraðili
Mango Studio ehf.
kt. 561219-0280 - Hafa samband
dimitri
Samþykki þessara notkunarskilmála er forsenda notkunar á bilaskra.is vefnum. Ef þú samþykkir þá ekki skaltu hætta notkun hans nú þegar.
Óheimilt er að hlaða niður efni vefsins öðruvísi en í vafra til skoðunar eins og vefurinn kemur fyrir. Öll vinnsla á efni vefsins er óheimil. Heimilt er að vísa í síður vefsins á öðrum vefsíðum. Ljósmyndir eða myndbrot á vefnum eru varðar höfundarrétti. Bíla- eða vélasölur, -umboð og -innflytjendur kallast einu orði söluaðilar. Söluaðilar gegna oftar en ekki einungis hlutverki milliliðs í viðskiptum, og ber að líta á þá sem slíka. Upplýsingar á vefnum endurspegla innihald söluskráa söluaðila og eru birtar án skuldbindinga og með fyrirvara um villur. Séu upplýsingar á vefnum rangar eða teljast á einhvern hátt óbirtingarhæfar þarf að hafa samband við þann söluaðila sem skráningin er merkt.
Upplýsingar á vefnum eru ekki ábyrgðarskyldar og eru settar fram af bestu vitund, en eru ekki settar fram sem áskyldir kostir viðkomandi ökutækja eða vinnuvéla og upphefja því ekki rannsóknar- og skoðunarskyldu væntanlegra kaupenda og réttmæti þeirra. Söluaðilar eru á engan hátt ábyrgir gagnvart skaða sem hljótast kann af völdum skorts á upplýsingum eða rangra upplýsinga á vefnum. Mango Studio ehf. ábyrgist ekki að upplýsingar á vefnum séu ætíð aðgengilegar og uppfærðar, og er á engan hátt ábyrgt gagnvart skaða sem hljótast kann af völdum notkunar á vefnum, skorts á upplýsingum eða rangra upplýsinga á vefnum.
Við notkun á vefnum er hugsanlega spurt um persónulegar upplýsingar, t.d. við innskráningu eða sendingu tilboða eða fyrirspurna. Þessar upplýsingar eru geymdar til að koma þeim áleiðis til viðtakanda og mögulega á meðan á úrvinnslu viðtakanda stendur. Notendur sem vilja ekki að við geymum upplýsingar um þá skulu ekki gefa upp slíkar upplýsingar! Vefurinn notar fótspor (cookies) í margvíslegum tilgangi. Persónulegar upplýsingar eru ekki vistaðar í fótsporum. Nánar er kveðið á um þetta í yfirlýsingu okkar um persónuvernd hér að neðan. Skilmálar þessir geta breyst án fyrirvara en gildandi útgáfa þeirra er ávallt aðgengileg á þessari síðu. Með notkun á vefsíðum bilaskra.is samþykkir notandi þessa notkunarskilmála.
Upplýsingar á þessum vef eru samkvæmt okkar bestu vitund á hverjum tíma og er ekki tekin ábyrgð á viðskiptum sem gerð eru á grundvelli þeirra. Þá getum við ekki ábyrgst að upplýsingarnar séu réttar. Upplýsingar og skoðanir sem fram koma á vefnum geta breytast án fyrirvara.
Þær upplýsingar sem eru birtar á heimasíðu okkar fela á engan hátt í sér ráðleggingar til viðskiptavina um kaup eða sölu og bera notendur síðunnar einir ábyrgð á þeim fjárfestingarákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinga sem birtar eru á heimasíðunni. Við berum ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af upplýsingum er birtast á heimasíðu okkar né tjóni sem rekja má beint eða óbeint til notkunar á vef okkar. Þá berum við ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota vefinn um skemmri eða lengri tíma.
Við eigum höfundarrétt á öllum þeim upplýsingum sem fram koma á þessum vef, nema annað sé tekið fram eða leiða megi af eðli máls. Skriflegt samþykki okkar þarf til að safna, vinna með, endurbirta upplýsingar sem hér koma fram, dreifa þeim eða afrita þær. Ekki skiptir máli hvers eðlis upplýsingarnar eru né í hvaða tilgangi ætlunin er að safna, vinna með, endurbirta þær, afrita eða dreifa þeim. Vélræn vinnsla, öflun eða skoðun gagnanna af forritum hvers konar er óheimil.
Lagalegur fyrirvari vegna tölvupóstsendinga Upplýsingar sem kom fram í tölvupósti og eftir atvikum viðhengjum, sendum frá netföngum okkar, gætu innihaldið trúnaðarupplýsingar og/eða einkamál og eru eingöngu ætlaðar þeim sem hann er stílaður á. Efni hans og innihald er á ábyrgð þess starfsmanns sem sendir hann ef það tengist ekki starfsemi okkar. Ef tölvupóstsending hefur ranglega borist einhverjum ber að gæta fyllsta trúnaðar, tilkynna sendanda og eyða mótteknum gögnum eins og kveðið er á um í 47. gr. laga nr. 81/2003 um fjarskipti.
Tilgangur vinnslu
Mango Studio ehf. heldur úti samnefndum vef og forriti Bílaskrá.is í þeim tilgangi að koma á viðskiptasambandi um kaup og sölu á farartækjum. Öll söfnun, úrvinnsla og deiling gagna tengist þeim tilgangi að veita aðgang að þessari þjónustu. Bilaskra.is safnar ekki persónuupplýsingum umfram það sem nauðsynlegt er og takmarkar vinnslu eins og hægt er.
Hvaða gögnum er safnað
Notendur skrá sig inn á vefinn og appið og gefa upp nafn, netfang og símanúmer. Fyrirhugað er að veita aðgang með viðurkenndum auðkenningarleiðum eins og OpenAuth og vista sambærilegar upplýsingar um notendur með þeim hætti. Vakin er athygli á því að þegar farið er inn á vefsíðu okkar vistast fótspor (e. cookies) í tölvu notandans. Þessi fótspor eru litlar textaskrár sem notaðar eru til þess að bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu til samræmis við auðkenninguna ásamt því að greina heimsóknir á vefsíðuna. Aðrar vefsíður eiga ekki að geta lesið upplýsingarnar sem eru geymdar í fótsporinu.
Með því að samþykkja þessa skilmála um notkun á fótsporum er okkur m.a. veitt heimild til þess að safna og greina upplýsingar eins og t.d.:
- Fjöldi gesta og fjöldi innlita frá gestum
- Lengd innlita gesta
- Hvaða síður innan vefsins eru skoðaðar og hversu oft
- Tegund skráa sem sóttar eru af vefnum
- Hvaða stýrikerfi og vafrar eru notuð til að skoða vefinn
- Hvaða leitarorð af leitarvélum vísa á vefinn
- Hvaða vefsvæði vísaði notanda á vefinn
- Hvenær dagsins vefurinn er skoðaður
Þessar upplýsingar eru notaðar til þess afla vitneskju um notkun á vefnum og hvaða efni notendur hafa áhuga á að skoða. Þannig getum við aðlagað vefinn betur að þörfum þeirra.
Hægt er að breyta öryggisstillingum á flestum vöfrum þannig að þeir taki ekki á móti fótsporum. Einnig á að vera hægt að eyða þeim. Nánari upplýsingar um hvernig það er gert má finna á heimasíðum útgefenda flestra vafra.
Úrvinnsla gagna
Úrvinnsla gagna er í þeim tilgangi að veita og bæta þjónustu ásamt því að eiga skráðar upplýsingar um notkun á vefnum. Unnið er úr gögnum t.d. með Google Analytics.
Þjónustuaðilar bilaskra.is munu hafa aðgang að öllum gögnum eingöngu til að sinna rekstrarmálum, þar með talið til að bregðast við tæknivandamálum, öryggisbrotum og svikum.
Deiling gagna
Til að uppfylla virkni tengt vöktun og flýtileit eru send gögn um notandanafn til þriðja aðila. Gögn um nafn og netfang eru ekki send án samþykkis notanda. Kjósi notandi að senda skilaboð til söluaðila, t.d. í þeim tilgangi að gera tilboð þá fyllir bilaskra.is sjálfvirkt inn í reiti um nafn og netfang sem notandinn samþykkir að deila með söluaðila þegar hann smellir á hnapp um að senda skilaboðin, ásamt öðrum upplýsingum sem eru skráð af notanda inn í skilaboðin. Bilaskra.is mun jafnframt deila sömu upplýsingum með söluaðila þegar tekið er þátt í uppboði á vefnum og telst þá notandinn hafa samþykkt slíka upplýsingagjöf þegar hann skráir sig fyrir uppboðstilboði. Tilgangurinn með afhendingu slíkra gagna er eingöngu að koma á viðskiptasambandi.
Ópersónugreinanleg tölfræðigögn verða gerð aðgengileg þriðja aðila.
Rétturinn til að gleymast og afhending gagna
Notendur geta eytt aðgangi sínum “delete account” í gegnum vefviðmót á bilaskra.is og í gegnum appið og þar með gert notandann óvirkan. Gögnum er haldið eftir um alla notkun í 6 mánuði eingöngu í þeim tilgangi að geta rannsakað hugsanleg tilvik um misnotkun eða framfylgja beiðnum yfirvalda. Eftir 6 mánuði er þeim gögnum eytt.
Þú átt rétt á og getur óskað eftir eftirfarandi upplýsingum með því að senda skriflega fyrirspurn á info@bilaskra.is
að fá að vita hvaða persónuupplýsingar eru skráðar um þig og hvernig þær eru tilkomnar og fá aðgang að persónuupplýsingunum,
að fá upplýsingar um hvernig persónuupplýsingar um þig séu unnar,
að persónuupplýsingar um þig séu uppfærðar og leiðréttar,
að persónuupplýsingum um þig sé eytt, ef ekki er lengur málefnaleg ástæða til að varðveita þær,
að andmæla og / eða takmarka hvernig persónuupplýsingar séu unnar,
að fá afhentar persónuupplýsingar sem þú hefur látið okkur í té eða að þær séu sendar beint til annars aðila með þeim takmörkunum sem réttindi og frelsi annarra setja,
að afturkalla samþykki þitt til vinnslu þegar vinnsla byggist á þeirri heimild, með sama hætti og þú gafst það eða með því að senda á okkur skriflega fyrirspurn,
að fá upplýsingar um hvort fram fari sjálfvirk ákvarðanataka, þ.m.t. gerð persónusniðs og þau rök sem þar liggja að baki og einnig þýðingu og fyrirhugaðar afleiðingar slíkrar vinnslu.
Beiðni þín verður tekin til greina og þér afhentar upplýsingarnar (þegar það á við) innan hæfilegs tíma, þó með þeim takmörkunum sem réttindi og frelsi annarra gera, þ.m.t. viðskiptaleyndarmál og hugverkaréttindi. Athygli er vakin á að innheimt er sanngjarnt gjald byggt á umsýslukostnaði sé farið fram á meira en eitt eintak. Þér verður tilkynnt og gefin skýring ef töf verður á afgreiðslu eða ef ekki er unnt að verða við beiðninni að fullu eigi síðar en mánuði frá móttöku hennar.
Þú átt ávallt rétt á því að kvarta til Persónuverndar komi upp ágreiningur um meðferð persónupplýsinga, en við myndum hins vegar kunna að meta það að þú gæfir okkur tækifæri fyrst til þess að leysa málið áður en þú hefur samband við Persónuvernd.
Öryggi gagna
Mango Studio ehf. er annt um að þjónustan sé afhend með öruggum hætti. Bilaskra.is notar dulkóðun til að tryggja öryggi gagna í flutningi og við endurskoðum reglulega allar öryggisráðstafanir og höfum reglulegt eftirlit með öryggisverklagi.
Allir aðilar sem fá aðgang að gögnum eins og starfsmenn og verktakar þurfa að lúta samningsbundnum skilyrðum varðandi trúnað og öryggisverklag.
Hlíting við lög og reglur
Öll vinnsla á persónugreinanlegum upplýsingum, þar með talið öflun, skráning, vistum og frekari úrvinnsla er framkvæmd í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Þessi stefna er endurskoðuð reglulega til að gæta þess að framkvæmdin sé í samræmi við lög og reglur á hverjum tíma.
Vistun gagna og úrvinnsla gæti verið utan Íslands og Mango Studio ehf. mun gæta þess að óháð því sé alltaf um sömu vernd gagna að ræða og er lýst yfir í þessarri stefnu. Til dæmis eins og í Privacy Shield samkomulaginu milli Evrópussambandsins og Bandaríkjanna.
Frekari upplýsingar
Vinsamlega hafið samband við info@bilaskra.is til að fá frekari upplýsingar eða koma á framfæri ábendingum.
Tekur gildi 8. Janúar 2020
Við notum tæknilausnir Google til að greina notendahópinn okkar í þeim tilgangi að sinna honum betur. Með því að stilla til Google Ads Settings á vef Google getur þú ákveðið að taka ekki þátt í slíkum greiningum. Við notum gögn sem safnað er nafnlaust með Google Analytics til þess að bæta þjónustuna okkar. Við leitumst aldrei við að greina hegðun notenda niður á einstaklinga heldur nýtum þessar upplýsingar aðeins í nafnlausum og almennum tilgangi. Þannig getum við bætt þjónustuna okkar með tímanum.