Rauðu örvarnar á malbikinu
- Toyota á Englandi tók þátt í sérstöku uppátæki. Þeir léku eftir flugsýningu, þar sem þotur skilja eftir sig litaðan reyk frá vængenda niður á jörðina. Jon Winding-Sørensen hjá vefsíðunni BilNorge var á staðnum
Þetta er líklega dæmigert dæmi um nokkuð sem á „ekki að prófa heima“ - níu bílar hliðarspegil við hliðarspegil í flottum dansi á brautinni er sannarlega ekki á allra færi.
Þeir óku ekki aðeins nokkuð þétt á nokkuð góðum hraða, þeir gerðu það oft jafnvel án þess að geta séð einn metra fyrir framan sig.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1613204770_2109429452829550677_20667616000.jpg)
„Sérstaklega var hvíti reykurinn vandasamur,“ segir einn bílstjóranna.
Hér var komið með aðra samlíkingu við Rauðu örvarnar: Bílarnir voru útbúnir þannig að þeir skildu eftir sig litaðan reyk.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1613204770_6658515955584423454_20893763000.jpg)
Ekki frá útblæstrinum þó, þá hefði þurft að endursmíða bílana að verulegu leyti. Lituð lofttegund úr úðabrúsum var einfaldlega notuð.
Hér er myndband sem útskýrir svolítið um vandaða bakgrunnsvinnu:
![image](https://img.bilaskra.is/images/1613204771_2332495257680741579_21148615000.jpg)
Þetta byrjaði allt við eldhúsborðið heima hjá Paul Swift. Manni með 30 ára reynslu sem nákvæmnisökumaður.
Hann setti upp kóreógrafíuna með því að nota leikfangabíla sonar síns.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1613204771_5066662613018247458_21407895000.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1613204772_3675856030981953269_22568755000.jpg)
Hann safnaði síðan saman liðinu sem æfði í viku í aðstöðunni þar sem hann kennir venjulega. Þar æfðu þeir saman þar til allir vissu nákvæmlega hvað félaginn við hliðina var að hugsa.
Færðu sig út á flugvöll
Síðan fór allt liðið út á flugvöll í Yorkshire sem heitir Elvington (þar sem einum af Top Gear gaurunum - Richard Hammond - tókst að klessa Vampire ofurbíl á 450 km/klst. En eins og flestir eflaust vita þá slapp hann ótrúlega vel frá þessu óhappi).
Hér er svo annað myndband sem sýnir bíla gera listir sínar á brautinni:
Í Elvington fór liðið í gegnum allar æfingarnar þar til að allir ökumennirnir voru alveg vissir um hvað þeir ættu að gera þegar þeir væru komnir undir stýri.
Þeir fóru í þrjár prufukeyrslur áður en bílarnir fengu útbúnaðinum til að senda frá sér litaðan reyk og síðan var allt sett á fulla ferð.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1613204772_7457994565108312945_22822633000.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1613204773_7428935288291416065_23073682000.jpg)
Allir þurftu að vera á varðbergi
„Við þurftum að vera mjög nálægt næsta bíl og vera mjög á varðbergi gagnvart umhverfinu. Það var virkilega mikil ögrun að gera þetta allt fullkomið; halda réttum hraða og réttri vegalengd að næsta bíl. Og síðan bættist við allur reykurinn í kringum okkur - við höfðum ekkert til að treysta á nema það sem við höfðum náð að þróa með okkur í æfingum,“ var einföld skýring Ginu Walker, einum ökumanninum.
Hún vinnur sem vélvirki í bílafyrirtæki föður síns (móðir hennar ók í rallýkeppnum og varð FIA meistari á sínum tíma) og er meðlimur í liði Paul Swift.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1613204773_8213407205852494201_23349993000.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1613204773_3490294555338424630_23625749000.jpg)
Allt tekið upp á tveimur dögum
Ökumennirnir vörðu tveimur dögum við tökur áður en þeir pökkuðu aftur saman. Enginn af bílunum 9 var svo mikið sem með eina rispu eftir þetta.
Venjulegir bílar
Og til marks um það: Fyrir utan auka öryggisbúnað, voru bílarnir hefðbundnir tveggja eða þriggja lítra GT Supra á Michelin Super Sport dekkjum.
(grein af vef BilNorge)
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1612439470_8916590642977131667_892825145000.jpg)
Renault hefur gefið það til kynna að framtíð Megane sé í rafmagninu og kynnir rafdrifinn sportjeppa: Megane eVision...
![](https://img.bilaskra.is/images/1612443818_2138535902289596980_5240114959000.jpg)
Subaru mun enn einu sinni sýna hugmyndabíl undir heitinu „Viziv“ á sýningunni í Genf.
![](https://img.bilaskra.is/images/1612439430_5287262853813261069_852694772000.jpg)
Jaguar Land Rover hefur farið í tveggja ára rannsóknaráætlun sem mun sjá vörumerkið nota geimtækni til að aðstoða við þróun næstu kynslóðar bíla...
![](https://img.bilaskra.is/images/1612443775_4298100512396747800_5197127920000.jpg)
Erlend bílablöð og bílavefir hafa keppst við að fjalla um bílasýninguna í Frankfurt sem stendur yfir þessa dagana. Einn er sá bílavefur sem hefur mikil áhrif í bílheiminum en það er Autoblog í Bandaríkjunum