Ekki er langt síðan [ath. grein frá mars 2021] hér á Bílabloggi birtist grein um óheppileg nöfn á tegundum bíla. Það getur verið áhugavert að rýna í öll þessi nöfn og skoða hvaðan þeir sem ákveða nöfnin sækja innblástur.

Mannanöfn eru sjaldgæf á undirtegundum bíla en þó þekkjum við Opel Karl og Opel Adam, svo dæmi séu tekin. Toyota Sigurður myndi sennilega ekki virka vel annars staðar en hér á Íslandi, enda þurfa nöfnin að vera afar alþjóðleg til að þetta gangi upp.

Það verður að segjast eins og er að undirtegundir sem bera nöfn sem merkja eitthvað, geta verið skemmtileg, lýsandi og eftirminnileg. G14, H3, B423 og eitthvað í þá veru henta vel til að skilgreina og aðgreina hillur í pósthúsi, hlið í flugstöð, járnbrautarspor, ganga á vörulagerum eða svæðisskiptingu á flennistórum bílastæðum. En fyrir undirtegundir bíla… Æj, nei.

Þetta kemur sannarlega í veg fyrir að einhver bíll beri „dónalegt“ nafn eða „kjánalegt“ í einhverju landi en um leið lýsa slík nöfn vissu andleysi.

Í það minnsta er auðvelt að gera sér í hugarlund hvernig er að hanna bíl með það í huga að hann muni bera nafnið Oldsmobile Cutlass. Orðið cutlass merkir bjúgsverð eða höggsverð; höggvopn með boginn, eineggjaðan brand. Það færi illa á því að bíll sem bæri nafn er vísaði til flugbeitts sverðs væri í laginu eins og kúla. En ef nafnið væri bara Oldsmobile T42 þá væri það ekki lýsandi fyrir eitt eða neitt.

Helst ekki fjölfætt, loðin eða slímug

Af nógu er að taka og í stað þess að fara yfir allt heila klabbið, alla flokka, í eitt skipti fyrir öll er betra að skoða einn flokk tegundaheita sem er nokkuð vinsæll. Það eru nöfn sem sótt eru í hið virðulega og jafnframt ógnvænlega dýraríki.

image

Má kannski bjóða þér far? Mynd/Unsplash

Skordýr eru örfá á þeim lista sem undirrituð hefur sett saman yfir nöfn bíla fengin úr dýraríkinu. Eru þær „pöddur“ sem um ræðir ekki af þeim toga sem vekja skelfingu eða taugaveiklun hjá mannfólki.

Þ.e. ekki pöddur sem eru með marga fætur, slepjulegar, slímugar, loðnar, meindýr eða þess eðlis að fyrsta hugsun fólks sé, þegar heitið ber á góma, að kremja kvikindið!

Flugur og önnur vængjuð skorkvikindi hafa ekki verið hátt skrifuð hjá nafnasmiðum bílaframleiðenda. Ford Hrossafluga eða Morris Margfætla myndu til dæmis afskrifa samstundis stóran hóp kaupenda.

image

Ætli margir tengi VW Bjöllu við pöddu?

Hudson Hornet er reyndar á gráu svæði sé tekið mið af því sem ritað var hér að ofan því hornet þýðir geitungur (Hudson Wasp kom síðar) og í dag virðast æði margir missa dómgreindina og jafnvel vitið þegar gaddvespa eða geitungur kemur of nálægt.

Hornet var framleiddur á árunum 1950 til 1957 en í dag þykir þessi nafngift sennilega álíka viðeigandi og Hudson Lúsmý eða eitthvað í þá veru.

image

Ekki eftirlæti allra þessi loðna... Mynd/Unsplash

Einnig má minnast á Datsun Honeybee, Dodge Super Bee, hinn og þennan Spider, Scorpion og eflaust sitthvað fleira. Þess ber þó að geta að hvorki köngulær né sporðdrekar eru beinlínis „pöddur“ eða skordýr heldur tilheyra annars vegar ættbálki áttfætlna (Scorpiones) og hins vegar náskyldum ættbálki í áttfættu stórfjölskyldunni (Araneae).

Garðslöngur og aðrar slöngur

Til er fólk sem haldið er sjúklegum ótta eða fælni (phobia) þegar skriðkvikindi eru annars vegar. Þá er einkum og sér í lagi átt við slöngur (nöðrur og snákar eru að mati undirritaðrar býsna góð orð yfir sama fyrirbæri) og ótrúlegt en satt, í augum okkar sem búum á snákafrírri eyju, þá er þetta sennilega algengasta skilgreinda fælni sem mannfólk á við að etja.

Þessi fælni, sem kemur hetjum eins og Indiana Jones í fósturstellinguna, hefur ekki haft mikil áhrif á þá nafnasérfræðinga sem galdra fram heitin á bíltegundum. Það eru nefnilega allnokkur nöðruleg nöfn til á bílum.

Áður en farið verður yfir þau nöfn er eiginlega óhjákvæmilegt að benda á eina stórmerkilega staðreynd. Hún er sú að skriðdýrafælni nefnist Ophidiophobia og er dregið af grísku orðunum yfir slöngur og hræðslu. Óþjált kann orðið að virðast í fyrstu en það á þó ekkert í eitt lengsta orð sem fyrirfinnst í orðabókum heimsins en það er: Hippopotomonstro-sesquippedaliophobia. Það (voðalega langa orðið) vísar til ofsahræðslu við hið klunnalega spendýr sem blessaður flóðhesturinn er. En aftur að bílunum:

image

Dodge Viper sækir einnig nafn sitt í fóbískt umhverfi skriðkvikindanna. Þegar ég var lítil vildi ég ekki trúa að svona fínn bíll héti eftir höggormi eða frændum hans og taldi mér einfaldlega trú um að hér væri um að ræða Dodge Rúðuþurrku.

image

Þetta er ekki tæmandi listi en sennilega er best að láta þessu baneitraða „slangri“ um spotta, bönd og snúrur lokið. En svona rétt í blálokin þá má auðvitað  velta fyrir sér, þar sem það þykir svalt að nefna bíla eftir eiturnöðrum, af hverju engir bílar heita eftir algjöru eitri; AC Arsenic eða Dodge Blásýra?

Úr bölvuðu eitrinu í blessaða fuglana

Maður er kominn með hnút í magann eftir þessa niðurdrepandi eiturumfjöllun. Þá er aldeilis við hæfi að hugsa heldur um hina fiðruðu gleðigjafa (oftast eru þeir gleðigjafar fyrir mannfólkið a.m.k.) sem blessaðir fuglarnir eru. Þeir hafa heldur betur gert það gott í bílanafnasúpunni. Byrjum á sprenghlægilegum bíl til að hrista af okkur eitrunaráhrifin.

image

Hann er kenndur við glóbrystinginn, fugl af þrastarætt sem syngur svo fallega. Bíllinn sem um ræðir gefur þó heldur frá sér gæsahúðarörvandi, tannpínukveikjandi surg-hljóð þegar hann skrapar malbikið í beygjum og á hringtorgum. Það gerist þegar hann veltur.

Hlaupagaukurinn og „meep meep“ flautan

Plymouth Roadrunner kom á markað árið 1968 og er hann nefndur eftir fugli af gauksætt (Geococcyx californianus) sem á íslensku kallast hlaupagaukur.

Gaukurinn sá heldur sig mest á jörðu niðri og hleypur ótrúlega hratt, og ná þeir spretthörðustu allt að 40km/klst.

Ætli hlaupagaukurinn sé ekki jarðtengdasta tegund fugla sem bílar heita eftir? Í það minnsta er manni ekki kunnugt um að bílar su nefndir í höfuðið á ófleygum fuglum; geirfugl, kíví, strútur, dúdú, emúi eða mörgæs… Og þó! Alnetið heldur að eitthvað bílkyns heiti kíví en það hlýtur að vera eftir hinum furðulega ávexti.

Auðvitað náði hann ekki hlaupagauknum; gaukurinn fór svo hratt að jörðin logaði eftir yfirferð hans.

Plymouth mun hafa greitt Warner Bros.-Seven Arts fúlgur fjár á sínum tíma fyrir afnot af hinu einkennandi „meep meep“ hljóði teiknimyndafígúrunnar. Til hvers? Jú, bílflautan þurfti auðvitað að gefa þetta hljóð frá sér og er dálítið hljóðdæmi hér að neðan.

Ránfuglar, fuglar úr goðafræði og fleira gott

Ránfuglarnir fyrirfinnast víða í tegundaheitum bíla og má þar til dæmis nefna Ford Raptor, sem þýðir einfaldlega ránfugl en nafnið getur líka vísað til snareðlu (Velociraptor) og er það nokkuð öflug blanda.

Bíltegundin Eagle var sannarlega til en að fara ofan í eignarhald, upphaf endi og framhaldslíf þess er eitt sinn hét Eagle er of þreytandi svo því skal sleppt!

Dulúðugur blær er yfir Eldfuglinum, eða Firebird en Pontiac Firebird vísar til hins risastóra goðsögulega fugls; fönix. Fuglinn sá er tákn upprisu og lífs en samkvæmt sögunni lifði hver fönix í 500 ár.

image

Vissulega eru mun fleiri bíltegundir sem kenndar eru við fugla: Nissan Bluebird, Studebaker Lark, Kissel White Eagle og já, eflaust fleiri. En nóg um blessaða fuglana!

Kettir eltast við fugla, eða er það á hinn veginn?

Að lokum er við hæfi að fjalla agnarögn um kattarheitin í bílheimum. Í það minnsta látum við hundana alveg eiga sig því engin bíltegund virðist kennd við hunda. Sem fyrr, og síðar, get ég auðvitað farið með fleipur. Sannleikurinn er sá að engin tegund skýtur upp hundshausi í fljótu bragði.

image

Hann virðist dálítið umkomulaus kettlingurinn. Samt veit hann minnst um hina varasömu þríhjólabíla sem eru veltandi tímasprengjur.

Vélin, 850 cc, sem á góðum degi skilaði fjörutíu hestöflum, var sú sama og í þríbarðanum. Eitt má þó nefna sem þótti virkilega gott sem var að finna í þessum bíl frá og með árinu 1976 í DE LUX útgáfu - og haldið ykkur nú fast! Í bílnum var útvarp, og ekki nóg með það heldur tveir hátalar að auki. Eins og útvarpið eitt og sér væri ekki ótrúlegur munaður.

360 hestafla villingur

Næsti köttur er Buick Wildcat. Hann var framleiddur frá 1963 til 1970. Fyrsta kynslóð villikattarins fékkst með 6.6L vél annars vegar (401) og 7.0L (425) hins vegar. Nailhead V8.

image

Malaði kannski eins og kettlingur á stundum en gat líka orgað og hvæst sem sá villiköttur sem hann jú var.

Hrikaleg óargadýr og svo...nokkur meinlaus

Í þessum flokki eru alveg hreint rosalegir bílar! Bílar eins og Buick Cheetah, Mercury Cougar, Sunbeam Tiger og sannarlega nokkrir af ætt Jaguar.

Svo bara gerist eitthvað alveg spes. Þessir ofnæmisvaldandi og taugatrekkjandi kettir verða að einhverjum hálfgildings kisum;

Opel Tigra, frábært nafn, reyndist tígur í engri gæru. Framhjóladrifinn með 1.4L og 1.6L vél. Með þeirri stærri gat ökumaður „tígursins“ verið, þegar best lét, 10.5 sekúndur frá 0 upp í 100 km/klst. Þetta var ekki gott! Ekki fyrir sportkött.

image

Þegar Puma kom á markað árið 1997 man ég að mér fannst bíllinn ekkert smá flottur! Svo fór ég að lesa um hinn „innri“ bíl og flökti þá logi fegurðar uns hann hreinlega slokknaði. 1.4L vél sem skilaði 90 hestöflum? Nei, onei!

Fór ég minna ferða þá frekar á reiðhjóli, sem ég neyddist raunar til að gera því ég var bara 16 ára gömul árið 1997. Samt stórhuga.

Allir bílar voru skoðaðir og lesið um þá þar til bílablöðin urðu að kuski; með það fyrir augum að nú þyrfti að velja og hafna!

Hér erum við svo gott sem komin að leiðarlokum í nafnaskoðun (ekki naflaskoðun!) dagsins.

En hestarnir maður!

Jú, þessi pistill er nánast alveg búinn. En svo það sé á hreinu þá gleymdust hestarnir ekki! Það er gríðarstór skeiðvöllur, fullur af miklum gæðingum og yfir þann völl verður ekki valhoppað í snarheitum.

[Greinin birtist fyrst 14. mars 2021]

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is