Rétt lullast áfram
Þeir sem versla sér nýjan Dodge Challenger eða Charger með stóru V8 vélunum eru að sækjast eftir öflugum og kraftmiklum bílum sem geta farið hratt. Hins vegar fer illa fyrir þeim sem reyna að stela slíkum bílum eftir að Dodge kynnti nýjan eiginleika bílanna en það er svokallaður öryggishamur.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1616712006_8226195656231241372_2557422352612766.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1616712007_6447679923501235160_2557423542882640.jpg)
Pinnið á minnið
Kerfið virkar þannig að eigandinn velur sér PIN númer líkt og við gerum til að nota greiðslukortin okkar. Þennan kóða verður að slá inn áður en bílnum er ekið af stað og ekki er mögulegt að nýta öll hestöflin nema að kóðinn sé notaður.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1616712009_1501210919311652692_2557424850322519.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1616712010_4341582436438486557_2557425979533423.jpg)
Aðeins 2,8 hestöfl
Ef svo illa vildi til að lyklum bílsins hefði verið stolið sér öryggiskerfið um að vélin skili ekki fleiri hestöflum en 2,8 og minna en 30 Nm togi. Þetta ætti að gefa þjófnum tækifæri til að yfirgefa ökutækið eða þá að hann yrði fljótlega stöðvaður af laganna vörðum.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1616712011_8308966894012479698_2557426843536897.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1616712012_2817572771603209200_2557428072898312.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1616712013_8437171672109353883_2557429273547313.jpg)
Þessi nýi búnaður verður ekki aðeins boðinn í nýjustu gerðum Dodge Challenger og Charger heldur geta eigendur annarra vélargerða eins og 6,4 lítra eða Supercharged 6,2 lítra V8 vélanna frá 2015 einnig fengið þetta sett í bíla sína. Dodge ætlar að bjóða ísetninguna frítt en þeir sem ætla sér í þessar breytingar verða að hinkra aðeins fram á vorið því Dodge menn verða ekki tilbúnir með búnaðinn fyrr.
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1672144808_7870946548707263199_25770712650143035.jpg)
Nýr alrafmagnaður Land Rover Defender á leiðinni með um 480 km drægni...
![](https://img.bilaskra.is/images/1674204010_1512025750461883500_27829914664110659.jpg)
Rafbílar voru 10% af bílasölu á heimsvísu á síðasta ári - þetta gæti fjórfaldast fyrir 2030...
![](https://img.bilaskra.is/images/1638441606_2895519079427607027_6016206384244039.jpg)
Frá og með áramótum mun bílaumboðið Brimborg selja Opel. Mun þetta fylgja í kjölfar skipulagsbreytinga á sölukerfi Opel. Viðskiptablaðið greinir frá þessu í dag.
![](https://img.bilaskra.is/images/1612441316_1602540532924935505_2738191549000.jpg)
MILAN - Fiat Chrysler er að setja í gang verkefni í sínum sögulega ítalska heimabæ, Tórínó til að láta bíla sína með tengitvinnbúnaði fara sjálfkrafa...