VW sýnir ID.6 X og ID.6 Cross í Shanghai – bara fyrir Kína
- VW miðar á kínverskar fjölskyldur með ID6, stærsta rafbílnum í ID-linunni hingað til
- Crossover-bíllinn var hannaður fyrir stærsta markað bílaframleiðandans þar sem rúmgóð ökutæki eru vinsæl
Volkswagen hefur verið að hasla sér völl á sviði rafbíla að undanförnu með aukinni sókn – og þar er ID-fjölskylda rafbíla sem aðeins notar rafhlöður fremst í flokki.
ID.6 í tveimur gerðum frumsýndur í Shanghai
En sókn ID-bílanna heldur áfram, og nú síðast austur í Kína, þar sem ID.6 var fumsýndur í tveimur gerðum á alþjóðlegu bílasýningunni í Shanghai.
ID.6 Crozz og systurgerð hans, ID.6 X, verða lykillinn að því að hjálpa VW vörumerkinu að auka markaðshlutdeild sína fyrir rafknúna ökutæki í Kína. VW kynnir ID.6 Crozz á sýningunni í Changhai. Mynd REUTERS.
Volkswagen miðar á fjölskyldukaupendur í Kína með ID6, stærstu rafhlöðuknúnu gerð sinni til þessa.
„Við höldum skriðþunga og aukum smám saman úrval okkar af MEB-bílum. Árið 2023 mun Volkswagen vera með alls átta mismunandi bíla í Kína“, sagði Ralf Brandstaetter forstjóri vörumerkis VW.
Vörumerki VW stefnir að meira en 50 prósenta markaðshlutdeild fyrir rafknúin ökutæki í Kína og Bandaríkjunum árið 2030, sagði fyrirtækið í mars. Það miðar að því að minnsta kosti 70 prósent ökutækja sem seldar eru í Evrópu verði þá rafknúin.
ID6 X er útgáfa SAIC Volkswagen Auto í Kína af stóra rafknúna krossover-bílnum. Mynd REUTERS.
Bílarnir eru 4880 mm að lengd og þeir eru því aðeins lengri en 4878 mm Touareg, stærsti sportjeppi VW með hefðbundinni brunavél.
Kemur á Bandaríkjamarkað en sennilega ekki til Evrópu
Útgáfa af ID.6 er líkleg til að bætast við bandaríska framboðið hjá VW og verða smíðuð á staðnum, en ekki fyrr en eftir nokkur ár. Engin áform eru uppi um það núna að selja þennan crossover í Evrópu, hefur VW sagt.
ID6 kemur án áþreifanlegra hnappa og rofa. Stýrikerfi bílsins notar 12 tommu skjá með snertiskjá og Hello ID raddstýringarkerfi VW vörumerkisins.
ID6 X verður smíðaður af SAIC Volkswagen Auto og ID6 Cross af FAW-Volkswagen Auto.
VW segir sprettiskjá í sjónlínu ökumanns verði aukabúnaður. Hann varpar örvum frá leiðsögukerfinu yfir á rétta akrein.
ID.6 verður framleiddur í verksmiðjum í Anting og Foshang, Kína. ID6 X verður smíðaður af SAIC Volkswagen Auto og ID6 Crozz af FAW-Volkswagen Auto.
ID.6 er þriðja gerðin byggð á rafknúnum rafmagnsbílum á MEB-grunni bílaframleiðandans, í kjölfar frumaýningar í fyrra á ID3 í svipaðri stærð og Golfs og ID4 sem er svipaður Tiguan að stærð. Þessi 300 mm til viðbótar í ID.6 að lengd miðað við ID.4 rúmar þriðju sætaröðina.
ID6 kemur án áþreifanlegra hnappa og rofa. Stýrikerfi bílsins notar 12 tommu skjá með snertiskjá og Hello ID raddstýringarkerfi VW vörumerkisins.
(Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Ekki veit ég af hverju nákvæmlega það kom upp í hugann en kannski er það ekki svo galið: Þetta er eins og agnarsmá sinfóníuhljómsveit sem leikur fegurstu verk meistaranna fumlaust.
„Við viljum öll valkosti þegar kemur að því að velja næsta bíl, hvort sem það er ódýr notaður bíll eða fólksbíll með nýjustu hátækni. Og samt eru margir sem hafa...
Það hljómar vel að „vinna bíl“ og tilhugsunin er góð. Flest okkar „vinna fyrir bíl“ enda hverfandi líkur á að hreppa hnossið í bílahappdrætti.
Við höfum aldrei verið með neinn formlegan „leik“ hér á Bílabloggi áður þó svo að líf margra okkar sé einn stór og mikill bílaleikur í sjálfu sér. Nú langar okkur að gefa lesendum, já ykkur, kost á að eignast bókina Bílamenning. Leikurinn er einfaldur og hefst hann núna!