Hekla og Bílablogg í samstarfi

Næstu sex mánuðina ætlum við að lýsa upplifun okkar á því að aka um á rafmagnsbíl. Markmiðið er að gefa lesendum okkar innsýn í daglegt líf rafbílanotenda.

image

Á myndinni eru f.v. Pétur R. Pétursson og Jóhannes Reykdal frá Bílabloggi, Jóhann Ingi Magnússon vörumerkjastjóri hjá Heklu og Halldóra Anna Hagalín markaðsstjóri Heklu.

Hekla leggur til bílinn og munum við nota hann eins og okkar eigin bíl yfir sex mánaða tímabil.

Stefnan er að blogga um rafmagnaða upplifun okkar og fylgja eftir með myndböndum, viðtölum og umfjöllun um allt sem viðkemur því að skipta yfir í rafbíl og notkun hans.

Er Ísland aftarlega á merinni?

Við ætlum að leita svara varðandi stöðu innviða uppbyggingar fyrir rafmagnsbíla á Íslandi og bera saman við nágrannaþjóðir. Ræðum við forkólfa vegakerfisins, tæknigúrúa og þá sem þegar hafa skipt yfir í rafmagnsbíla og fáum þeirra sjónarmið fram.

Hleðslustöðva prófessorar

Hleðslustöðin er hin nýja „bensíndæla” og margir eflaust spenntir að heyra meira um svoleiðis búnað. Hvaða lausn hentar hverjum og hvað eru slík búnaðarkaup og uppsetning að kosta.

image

Glænýr Volkswagen ID.4 1st. Edition verður notaður í verkefnið.

Endurmenntun umboðsaðila

Ásamt þessu ætlum við að gefa innsýn í muninn á notkun rafmagnsbíla og hefðbundinna, skoða hvernig tæknibyltingin hefur haft áhrif á bílaumboðin og þeirra þjónustu og skoða sem flesta snertifleti á rafbílatækninni.

Þjáist þú nokkuð af drægnikvíða?

Það er von okkar að við getum boðið upp á skemmtilega þætti og greinar sem lýsa sem best upplifun okkar, stöðu tæknibyltingarinnar og hverjar breytingarnar eru við umskipti yfir í rafmagnsbíl.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is