Polestar 4 árgerð 2023 verður meðalstór coupé-sportjeppi á viðráðanlegu verði
Polestar mun setja nýja 3-sportjeppann á markað árið 2022 og og 5-bílinn byggðan á Precept árið 2024, með almennari “crossover”-bíl þar á milli.
Thomas Ingenlath, forstjóri Polestar, hefur gefið frekari upplýsingar um hvernig rafbílafyrirtækið mun auka framboð sitt í kjölfar frétta um að það verði skráð á Nasdaq verðbréfamarkaðinn að verðmæti 20 milljarða dollara.
![image](https://img.bilaskra.is/images/null.jpg)
Polestar mun hleypa af stokkunum nýjum 5-bíl, byggðum á Precept (vinstri) árið 2024, á eftir 3 (til hægri) árið 2022 og 4 árið 2023.
Í skuggamyndinni sem fylgir þessari frétt má augljóslega sjá að þar eru 3 og 5, og 4 mun augljóslega koma á milli þeirra tveggja hvað varðar stærð en með aukinni áherslu á aðgengi fram yfir beinlínis lúxus og afköst.
Hins vegar hefur það „ekkert að gera“ með XC90 hvað varðar formið sjálft, því sá bíll mun hafa meiri loftfræðilega hönnun og „ótrúlega afstöðu og kraft“.
Þar af leiðandi mun 3 kosta meira en 75.000 evrur og verða settur á stall sem rafmagnsígildi flottari sportjeppa á borð við Porsche Cayenne, sagði Ingenlath. 4-bíllinn, hins vegar, verður verðlagður undir því verði til að höfða til breiðari markhóps.
4-bíllinn, mun í grundvallaratriðum vera jeppajafngildi 2-bílsins, lagði hann til.
Þaklínan með coupé áhrifum bendir til þess að það verði útgáfa Polestar af svipaðri stærð og Volvo C40, sem notar sama CMA grunn og 402 hestafla drifrás og 2-bíllinn. Skilgreiningin, eins og hjá öllum Polestar-bílum, verður einkennandi slétt og mínímalísk stefna fyrirtækisins í hönnun, sem styðst mikið við loftaflfræði og stendur fyrir að kraftmikinn karakter.
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1643524806_2781664373509878448_4092843140249108.jpg)
Það kemur fyrir að maður sjái eitthvað svos stjarnfræðilega vitlaust úti í umferðinni að ósjálfrátt rauðglóa allar tengingar í kollinum: Á þessi manneskja nokkuð erindi út í umferðina? Eða bara upp í ökutæki yfirleitt? Tökum nokkur dæmi.
![](https://img.bilaskra.is/images/1612441177_6003356021174127279_2599776576000.jpg)
BMW hefur staðfest að rafmagnssportjeppinn iX3 muni komast um það bil 430 kílómetra (eða meira) á einni hleðslu samkvæmt WLTP stöðlum og hefur...
![](https://img.bilaskra.is/images/1649781607_5630094177675447822_3407512217154537.jpg)
Þorpið Panzhiga í Yunnan-héraði er ekki stórt. Þvert á móti er það lítið og fámennt. Þar eru þó 40 Teslur en einn íbúi kom æði af stað þegar hann leyfði öðrum að prófa fína bílinn sinn. Elon Musk gerði sér ferð þangað til að skoða þorpið sem af mörgum er kallað „Tesla Village“.
![](https://img.bilaskra.is/images/1639676409_5939241649816630739_244446946938328.jpg)
Nei, hættu nú alveg! Það er hægt að slá met í ýmsu og ekki eru þau nú öll gáfuleg, heimsmetin. En það er aukaatriði. Í þessu tilviki er þetta fyrst og fremst drepfyndið.