BL frumsýnir sportlega jepplinginn Renault Arkana hybrid
Renault Arkana verður frumsýndur hjá BL við Sævarhöfða á morgun, 9. október milli klukkan 12 og 16. Hönnun Arkana er í senn sportleg og kraftmikil þar sem koma saman aflíðandi línur og afturhallandi baksvipurinn.
Arkana ber sterkan svip sportjeppa, bæði vegna hressandi útlitsins en einnig vegna þess hve veghæð undirvagnsins er mikil.
Renault undirstrikar svo sportlegt yfirbragðið með mögulegum aukahlutum á borð við stigbretti, vindskeið að aftan og aðkomuljós á undirvagni svo nokkuð sé nefnt.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1633696809_7788164490735673449_1271409050404014.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1633696810_2874143720832136216_1271410751111055.jpg)
Rafknúinn akstur
Arkana er búinn E-TECH; tækni sem notar bæði bensínvél og rafmótor. Tæknin hámarkar nýtingu eldsneytis og takmarkar mengun. Rafmótorinn, sem styðst við 1,2 kWh (230 V) rafhlöðu, gerir kleift að aka stutta vegalengd, allt að 5 km, eingöngu á rafmagni áður en aðalvélin kemur inn.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1633696812_6563213226453578178_1271412392948692.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1633696814_2450577459826257454_1271414090922248.jpg)
Þægindi
Arkana er sérlega vel búinn staðalbúnaði. Hann er t.d. með sjálfvirka aðfellanlega og upphitaða hliðarspegla, sjálfvirka stillingu aðalljósa, regnskynjara á rúðuþurrkum og mismunandi akstursstillingum við 7 gíra sjálfskiptinguna.
Arkana er líka búinn bakkaðstoð og fjarlægðarskynjurum og tækni sem getur lagt bílnum án þess að ökumaður þurfi nokkuð að gera.
Þá er bíllinn einnig búinn easy link-margmiðlunarkerfi sem tengist snjallsímanum sem stjórnað er á stórum margmiðlunarskjá svo fátt eitt sé nefnt.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1633696815_3603108927040125270_1271415700231890.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1633696817_7940176346233825583_1271417455714404.jpg)
Öryggi
Öryggisins vegna er Renault Arkana búinn ýmsum aðstoðarkerfum fyrir þjóðvegi og umferðarteppur, umferðarskynjara og tækni sem ber kennsl á gangandi og hjólandi vegfarendur í nálægð við bílinn.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1633696819_7827939465886742681_1271419125097509.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1633696807_7183209088024561888_1271407294689872.jpg)
Verð Arkana Intens og RS line
Renault Arkana er fáanlegur í tveimur útfærslum; Intens og RS line. Báðar eru þær með 1,6 lítra 143 hestafla bensínvél og rafmótor við sjö gíra sjálfskiptingu.
Eyðsla er frá 4.9 l/100 km. Renault Arkana Intens kostar 5.690.000 kr. og RS line 5.990.000 kr.
Umfram Intens er RS line m.a. búinn 18“ sérhönnuðum álfelgum, svörtu glerþaki, rafdrifnum framsætum og leðri, Bose hljóðkerfi og 360°myndavél. Allar nánari upplýsingar um eiginleika og ríkulegan staðalbúnað Renault Arkana, Intens og RS line eru að finna á Renault.is.
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1653201606_5178884169603659640_6827511304877902.jpg)
Að smíða sér kerru er ekkert grín. Þó getur útkoman orðið sprenghlægileg! Dæmi eru um að fólk hafi ætlað sér að smíða kerru til að fylla af rusli og fara nokkrar ferðir á haugana en einhvern veginn endað á því að smíða hús á hjólum.
![](https://img.bilaskra.is/images/1667515205_1897707942550139350_21141110563244426.jpg)
Haukur Hauksson blaðamaður lést aðeins 32 ára úr hjartasjúkdómi. Eiginkona Hauks kom á fót, ásamt blaðamannafélagi Íslands, sjóði sem hugsaður...
![](https://img.bilaskra.is/images/1643611206_5484921904321534247_2979048579470.jpg)
Já, svei mér þá! Ég held það bara. Sturlaða kittið fyrir Dacia Duster sem við fjölluðum um sl. haust er enn geggjað en þetta… Já, hvað finnst ykkur? Sprengir þetta skalann?
![](https://img.bilaskra.is/images/1658054406_8015055840934804756_11680311107878760.jpg)
Verið er að undirbúa fjórðu kynslóð Nissan X-Trail til kynningar síðar á þessu ári. Við höfum séð hann kynntan erlendis og X-Trail-bíllinn...