Aðalstjórnandi Alfa Romeo segir að Alfa verði ekki vörumerki eingöngu fyrir sportjeppa, þar sem alrafmagnaður Giulia fólksbíll er staðfestur í framtíðarframboði fyristækisins.

Alfa Romeo Giulia mun lifa áfram sem rafmagnsbíll, að sögn framkvæmdastjóra vörumerkisins, Jean-Philippe Imparato.

Þó að fyrirtækið muni líka einbeita sér að rafknúnum sportjeppum, en fyrsti fulli rafbíllinn frá Alfa Romeo kemur árið 2024, sagði Imparato við Auto Express að „Alfa Romeo muni eiga framtíð fyrir Giulia, og muni gera það líka á sviði sportjeppa.“

Samkvæmt Imparato er stefna fyrirtækisins að fara í fulla rafvæðingu fyrir kjarnaframboð sitt þar sem vörumerkið lítur út fyrir að breyta framboði gerða að fullu í rafmagn fyrir árið 2027.

„Ég þarf að taka stórar ákvarðanir. Ef ég vil hafa meira en meðalframmistöðu verð ég að vera djarfur,“ sagði hann. „Ef ég segi að ég fari í rafmagn þá fer ég í rafmagn. Ég er ekki að segja hálfa söguna, ef þú sérð hvað ég meina? Það virkar ekki. Það er áhætta, en það er eðlilegt. Við erum hér til að taka áhættu, en við erum komnir yfir tímamótin að mínu mati“.

Þrátt fyrir að hafa farið yfir í rafknúnar aflrásir lýsti yfirmaður Alfa því að vörumerkið myndi halda áfram að setja ökumannsmiðaða bíla og sportlega nálgun í forgang sem bílar þess hafa orðið þekktir fyrir í 111 ára sögu þess.

Stellantis mun hafa þrjár rafdrifnar einingar til umráða, þar sem sú þriðja býður upp á 400 eða 800v tækni og allt að 443bhp á mótor. Það þýðir að til að ná tilskildu frammistöðustigi fyrir Giulia Quadrifoglio myndi það líklega nota fjórhjóladrif með tveggja mótora uppsetningu.

Aukin drægni byggist á því að stóri grunnurinn er sagður taka við 101 kWh til 118 kWh rafhlöðu og allt að 800 kílómetra drægni. Bíllinn gæti líka verið að deila grunni og þróuninni með framtíðar Stelvio, eins og núverandi gerir með Giorgio grunninum.

image

Giulia verður hluti af sókn á sviði rafbíla Alfa sem hefst árið 2024 – líklega með sportjeppa – sem mun bjóða upp á eina útfærslu og tvær aflrásir. Henni verður fylgt eftir með einni kynningu eða stórum vöruviðburði á ári næstu fimm árin, þar sem þessi áætlun er þegar undirrituð og fjármögnun úthlutað.

Margir draumabílar á óskalistanum

Tonale mun koma á markað árið 2022 eftir 12 vikna töf til að bæta afköst bílsins, fylgt eftir með viðburði árið 2023, sem mun líklega vera lítill sportjepplingur. „Fyrsti rafbíllinn mun koma árið 2024 og við munum sjá stóra kynningu árið 2025, 2026, og við munum sjá Alfa Romeo sem rafbíla sem aðeins notar rafhlöður (BEV) árið 2027. Þetta er staðfest og fjármagnað."

Það er líka til fjöldi „draumabíla“ sem Imparato myndi elska að búa til.

Á meðan hann viðurkenndi að GTV væri á þessum lista sagði hann: „Ef ég þarf að velja þá fer ég í Duetto Spider. Vitanlega höfum við hannað þann bíl, en ég mun ekki þora að leggja það á borðið áður en Alfa Romeo er fullkomlega öruggur hvað varðar fjármálin. En við getum gert það með tæknibrúnni sem við höfum í vöruáætluninni, ekkert mál.“

(Byggt á fréttum á Auto Express og Autoblog)

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is