- Kia afhjúpar nýja Niro bílinn bæði sem 100% rafbíl og einnig sem „hybrid“ einmitt þegar samkeppni rafbíla harðnar
- Bílaframleiðandinn mun kynna aðra kynslóð tvinn- og rafbíla á næsta ári
Kia afhjúpaði í gær nýja Niro-sportjeppann með rafknúnum og tvinndrifnum aflrásum þar sem bílaframleiðandinn og samstarfsaðili hans, Hyundai, leitast við að ná árangri á rafbílamarkaðnum.
Önnur kynslóð Kia Niro EV er sýnd á bílasýningunni í Seoul.
„Hinn nýi Kia Niro er umhverfisvænt módel sem sýnir vilja okkar og getu til sjálfbærni við framleiðslu,“ sagði forstjórinn Ho-Sung Song við fréttamenn á bílasýningunni.
Í bílinn eru notuð umhverfisvæn efni, eins og endurunnar trefjar og málningu sem ekki inniheldur bensen. Bílaframleiðandinn stefnir að því að nota 20 prósent endurunnið plast í allar gerðir árið 2030.
Fyrsta kynslóð Niro náði vinsældum í Evrópu vegna samkeppnishæfni í verði og góðs aksturssviðs, sagði Kim Jin-Woo, sérfræðingur hjá Korea Investment & Securities í Seoul.
„Nýi Niro gæti verið sanngjarnt val fyrir neytendur sem eru að leita að fyrirferðarlitlu rafknúnu ökutæki ef hann hefur meira en 350 kílómetra drægni,“ sagði hann. Fyrri gerðin var með drægni upp á um 385 kílómetra.
Kia hefur selt 75.360 Niro á þessu ári í Evrópu fram í október, samkvæmt JATO Dynamics, sem er 18,2 prósenta aukning frá árinu 2020. Niro var í níunda sæti yfir almenna minni sportjeppa fram í september, samkvæmt JATO.
Aðrar umfjallanir
LG er ekki eina stórfyrirtækið sem kroppar í kantana á bílageiranum. Í gær sögðum við frá Sony bíl sem er í raun Playstation á hjólum...
Austin Mini kom fram á sjónarsviðið árið 1959. Allt fram undir aldamót var hann framleiddur af íhaldssömum Bretum sem ávallt hafa haldið að þeir framleiddu bestu bíla í heimi...
Jájájájá! Það voru risastórar felgur, en ekki risastór jeppadekk sem þetta snérist um allan tímann. Við höfum misskilið hvað það er að vera töff ef eitthvað má lesa út úr því sem ber fyrir augu í Ameríkunni stóru, einkum í Flórída. Þetta þótti og þykir MJÖG töff!
Subaru beinir athyglinni að Japan þegar bílasýningin opnar í Tókýó í næsta mánuði, og forsýna nýjan WRX STI, sérútgáfu fyrir heimamarkaðinn ásamt næstu kynslóð hins vinsæla Levorg