Nokkrir karakterar sem tengjast bílum og íslenskum kvikmyndum og sjónvapsefni hafa vaknað til lífsins að undanförnu í upprifjun á bílaatriðum. Atriðin eru fá en karakterarnir allnokkrir.
Karakterinn Krummi birtist áhorfendum Spaugstofunnar fyrst fyrir tjah, rúmum þrjátíu árum síðan. Þori ég ekki að fullyrða hvort það hafi verið árið 1990 eða fyrr en það sem birtist hér fyrir neðan er í það minnsta myndbrot frá 1990.
Bifvélavirkinn síbölvandi og „lausnamiðaði“ var leikinn af Sigga Sigurjóns. Ætli leikarinn hafi ekki sjálfur skapað þennan karakter sem fékk nafnið Krummi. Og hér er hann, gjörið svo vel:
Aðrar umfjallanir
MÍLANÓ - Fiat Chrysler Automobiles munu setja á markað þrjár nýjar gerðir sportjeppa fyrir Fiat, Alfa Romeo og Maserati vörumerkin á þessu ári...
2022 Aston Martin V12 Vantage var ekki í neinum „felubúningi“ þegar hinn mikli bílaspæjari hjá CarSpyMedia var á ferli við Nürburghringinn. Kannski þarf ekki að fela bílinn lengur en í það minnsta þá er hér myndband sem er fyrir margra hluta sakir sérstakt.
Piltur nokkur gerði sér lítið fyrir og skrapp á fjölskyldubílnum í skólann. Systkini hans fengu far. Verst að guttinn er bara 10 ára gamall og þó að hann hafi ekki klesst á eitt eða neitt þá er fullorðna fólkið alveg brjálað núna.
Þeir geta sannarlega komið eigendum á óvart, bévítans bílarnir! Í vikuskammti bifvélavirkjanna vestanhafs er eitt og annað kúnstugt að vanda, t.d. bíll sem er vel sviðinn en eigandinn sagðist hafa áttað sig á brunanum vegna fjölda öskrandi vegfarenda.