Enn og aftur er Tesluspæjarinn „okkar“ á ferðinni í námunda við verksmiðjuna í Fremont. Hann er örugglega ekkert voðalega vinsæll hjá framleiðandanum, eftir að hann svipti hulunni af breytingum á Cybertruck í síðasta mánuði. En við (og margir aðrir) kunnum sko að meta kauða!
Einlægi spæjarinn
Þetta er ungur maður frá Suður-Ameríku sem ver drjúgum hluta tíma síns við prófunarbrautina við hina risavöxnu Tesla-verksmiðju í Fremont í Kaliforníu. Hann virðist óskaplega einlægur náungi. Þegar einhver ribbaldi gerði ruddalega athugasemd við eitt af fyrstu spæjaramyndböndum hans (um gæði uppökunnar) man ég að hann svaraði eitthvað á þessa leið: „Þakka þér fyrir ábendinguna. Ég skal æfa mig meira við fínhreyfingar drónans.“
Ekki hefðu margir svarað eins ruddalegri athugasemd og þeirri sem ég vísa í (og tók því miður ekki skjáskot af einlægu svarinu) af viðlíka kurteisi og okkar einlægi spæjari. Og fyrir það á hann mörg raf-stig (það eru hin nýju rokkstig sko) skilið.
Þarna eru þær nokkrar. Skjáskot/YouTube
Enn fleiri stig bætast við fyrir það hversu miklum framförum hann hefur tekið og hér er nýjasta myndbandið hans. Gasalega flott myndband sem sýnir margar fínar Teslur – en það er svo sem enginn hápunktur eða augljós uppljóstrun í myndbandinu. Það þarf ekki alltaf að vera.
Aðrar umfjallanir
Forstjóri VW Herbert Diess sendi frá sér á Twitter skissu af útlínum nýju hönnunarinnar, sem byggir á línum upprunalegu gerðarinnar...
Oft hef ég hugleitt að sá rithöfundur sem ég dái mest tók aldrei bílpróf. Það er meistari Þórbergur Þórðarsson (sem ég hélt stóran hluta...
Stórviðburður í Los Angeles: áttunda kynslóð Porsche 911. Nýr Porsche 911 varnýverið frumsýndur á L.A. Auto Show.
Þetta er stórt ár fyrir jeppa og við meinum það bókstaflega, segja þeir hjá Autoblog, sem birtu þessa frétt á vefsvæði sínu. Ekki aðeins er Jeep...