Mark nokkur Perkins, hefur lengi verið bíladellukarl, já alveg síðan hann man eftir sér. Árið 1988 eignaðist hann fyrsta (athugið: fyrsta!) Batmobil-inn sinn sem hann keypti í Ameríkunni stóru og flutti til Englands. Síðan þá hafa bæst nokkrir bílar í safnið, ekki bara Batmobil-ar heldur alls konar spes ökutæki.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1641681612_8805391381921204409_2249649907404298.jpg)
Myndir/Instagram/_charactercars
Í dag rekur hann það sem kalla mætti „skrítnubílaleigu“ því það er fyndið. Bílarnir, sem tilheyra bílaleigunni Character Cars, hafa flakkað víða; verið sýndir á sýningum í Evrópu og Asíu svo dæmi sé tekið.
Vinsælast er þó að leigja bílana, enda er þetta bílaleiga, fyrir útskriftarveislur, afmæli (tjah, kannski ekki smábarna en hvað veit maður) og brúðkaup. Í sumum tilvikum, þegar mjög sérstakir bílar eru leigðir í brúðkaup grunar mann að brúðurin hafi ekki verið höfð með í ráðum en það er vonandi ekki rétt. En það gæti verið flókið að klöngrast upp í suma bílana í einhverju kjólgopa…
Myndirnar eru allar af Instagram-síðu Character Cars sem og þar er mun fleira að sjá, hafi menn áhuga.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1641681614_3712272694993469654_2249651448426777.jpg)
Ekki amalegt að fá KFC sent heim í Batmobile!
![image](https://img.bilaskra.is/images/1641681615_1975035875719270640_2249652935295988.jpg)
Lightning McQueen eða Leiftur McQueen getur ekki hætt að brosa.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1641681617_4540373206065345859_2249654463685650.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1641681618_4873017600104753503_2249656072401065.jpg)
Þá sjaldan sem farið er á bensínstöð er best að öll fyrirbærin fari saman og fái bensín.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1641681620_5663170291919102544_2249657737989374.jpg)
Brúðguminn var örugglega kátur og vonandi brúðurin líka…
![image](https://img.bilaskra.is/images/1641681622_6485355519159241250_2249659409295321.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1641681623_6863819023144077764_2249660713835623.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1641681625_1111058796359595681_2249662268612071.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1641681626_8645846653005903349_2249663791757684.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1641681627_3983800956551305693_2249664919334348.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1641681629_8091042387882058554_2249666484106724.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1641681630_7168806207147328047_2249668016587919.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1641681632_7435247049337406924_2249669545140098.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1641681634_2458723746190609009_2249671195888300.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1641681635_5110954379743272903_2249672783355719.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1641681637_2544495747481398384_2249674471696001.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1641681638_2717955148162184574_2249676068327488.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1641681640_8198354549612084395_2249677577224766.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1641681641_8813596388909120480_2249678831818920.jpg)
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1612441808_7064262504324345371_3230888135000.jpg)
Í september síðastliðnum tilkynnti Bentley að verksmiðjan myndi endursmíða 12 eintök af frægasta kappakstursbíl þeirra, 4 1/2 lítra...
![](https://img.bilaskra.is/images/1662828007_5494125624864744005_16453912207159911.jpg)
Nú er innan við vika í að nýr Mustang verði frumsýndur á Detroit Auto Show. En hvernig finnst lesendum hljóðið í honum? Hér er „tóndæmi“!
![](https://img.bilaskra.is/images/1643802011_6698247041540158664_193784375767257.jpg)
Tesla næstum tvöfaldaði sölu og framleiðslu á síðasta ári þrátt fyrir skort á íhlutum í birgðakeðjunni og útlit fyrir svipaða frammistöðu árið 2022 og eftir það.
![](https://img.bilaskra.is/images/1631014837_7682405395659022472_2219857571439249.jpg)
Volkswagen kynnti nýja grunngerð rafbíls á bílasýningunni í Munchen, og segir að ID Life hugmyndabíllinn í crossover-stíl vera...