Og ég sem hélt að hinn síbölvandi matarkarl, Gordon Ramsay, hugsaði ekki um annað en mat! Þar hafði ég nú aldeilis á röngu að standa og kannski er hann bara ágætur inn við beinið (að því gefnu að ekki sé búið að úrbeina hann). Hann er nefnilega bílasafnari!
Ferrari SP2 Monza
Ef fólk er með mikinn gassagang, blótar mjög og er bara með almenn rassaköst þá á ég það til að hafa varann á. Já, ég tek þannig fólki „með fyrirvara“ og held góðri fjarlægð. En komi í ljós að viðkomandi sé bílamanneskja; þá er nú annað uppi á teningnum! Liggur við að maður klappi manneskjunni á bakið og segi: „Nú! Af hverju ullaðirðu þessu ekki út úr þér fyrr manneskja?“
Við Gordon Ramsay sagði ég þó ekki múkk og ekkert fékk hann bak-klappið – enda höfum við aldrei hist svo ég viti.
Ferrari sinnum 13
Matargat eða ekki, orðljótur eða hvað; maðurinn er alvöru bílaunnandi og honum til happs á hann peninga til að kaupa alls konar bíla. Eða þá er hann með rosalega góðan þjónustufulltrúa í bankanum.
Þau eru ekki öll eins. Það væri nú líka undarlegt.
Skjáskot/YouTube
Ferrari fær hann meira að segja til að brosa breitt og það er frábært.
Skjáskot/YouTube
Hér er stutt myndband frá Ferrari-heimsókn hans og ég held að Ramsay blóti ekki einu sinni því hér brosir hann í heila mínútu:
Listi yfir þá bíla sem Gordon Ramsay á af Ferrari gerð:
Ferrari 308
Ferrari F355 GTS (1998)
Ferrari 550 Maranello (2000)
Ferrari F430 GTB (2005)
LaFerrari Aperta (2016)
Aðeins 200 bílar af þessari gerð voru smíðaðir og er þessi tvinnbíll tæp 1000 hestöfl. Bíllinn virðist vera í miklu uppáhaldi hjá Ramsay sem sagði eftirfarandi í viðtali sem birtist í tímariti Ferrari:
Ferrari F12TDF (2016)
Ferrari F12 Berlinetta
Ferrari SP2 Monza (2019)
Ferrari SP2 Monza er 800 hestöfl.
Ferrari 575M Meranello Superamerica
Aðeins 559 eintök voru smíðuð af þessari gerð.
Ferrari 430 Scuderia
Ferrari 812 Superfast
Ferrari Laferrari
Ferrari 458 Italia
Ferrari 488 GTB
Ferrari 612 Scaglietti
Ferrari Portafino
Ferrari California T
Grillað á 5,6 lítra vél
Svo kann hann líka að grilla fisk á bílvélum.
Hér grillar hann fisk á 5.6 lítra vél í Range Rover. Skilst mér, eftir að hafa lesið athugasemdir við myndbandið á YouTube, að Jeremy Clarkson hafi gert svipað í þætti með Ramsay og þeim síðarnefnda ekki þótt sú matreiðsla upp á marga fiska, eða þið vitið…
Hann skrapp í bíltúr og á meðan bakaðist fiskurinn. Mér finnst þetta svo kjánalegt að ég vil eiginlega ekki hafa myndbandið hérna í greininni en hér er hlekkur á það.
Aðrir bílar í eigu matmannsins:
Aston Martin DB7 V12 Vantage (2001)
Porsche 918 Spyder (2014)
Land Rover Defender 110 SVX ‘Spectre’ JB24 (2015)
BAC Mono (2016)
McLaren Senna (2019):
McLaren 675LT
Aston Martin DBS Superleggera
Ford GT (2019)
Bentley Continental GT
Porsche 911 Turbo
VW Golf VR6
Fleiri óvæntir „bílasafnarar“:
Aðrar umfjallanir
Volkswagen hefur staðfest að bill númer tvö sem smíðaður verður á MEB rafmagnsgrunninum muni kallast ID4...
Sebastian Vettel, fjórfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, tilkynnti í morgun að hann muni hætta eftir keppnistímabilið. Vettel hefur keppt í Formúlu 1 í 15 ár og ekur fyrir Aston Martin. Meira um þennan magnaða ökumann síðar en hér er myndband sem Aston Martin birti áðan.
BERLIN – Kínverska rafmagnsframleiðandinn Nio mun koma með nýja almenna rafmagnsmerki sitt til Evrópu nokkrum mánuðum eftir að það
Síðasti kubburinn rataði á sinn stað í gær og þar með var hann tilbúinn: Stærsti Formúlu 1 Legobíll í heimi.