Þegar einn milljarðamæringur sýnir bílasafni annars milla áhuga þá er gaman. Auðug systkin frá Abu Dhabi eru nú í heimsókn hjá indverskum félaga sem vildi endilega sýna þeim bílana sína og fóru þau með einkaþotu hans frá Dubai til Indlands.
Bílasafn félagans telur yfir 100 eðalbíla og já, það er 100.000.000 dollara (yfir 13 milljarða íslenskra króna) virði.
Systkinin eru nú ekki á flæðiskeri stödd sjálf fjárhagslega séð en þessi vinur þeirra á meiri peninga en tjah, hvað getur maður sagt…? Hann á alla vega slatta af þeim og rúmlega það. Felgumiðjur úr skíragulli og fleira sem maður hafði ekki ímyndunarafl til að láta sér detta í hug.
Stráksi útskýrir öryggiskerfið í einum bíla sinna og hvernig eitt handtak virkjar lögregluna í námunda við bílinn ef eitthvað gerist.
Eins og sjá má ef horft er á meðfylgjandi myndband þá eru blikkljós eins og á löggubílum í grillinu á mörgum glæsivagnanna. Það er af því að fjölskyldan er svo mikilvæg að þau hún nýtur forgangs í umferðinni eða eitthvað álíka galið. Lífverðir fylgja fólkinu hvert sem það fer. Það getur nú varla verið mjög hressandi...
Systkinin voru sótt á voðalega fínni drossíu til að fara út á flugvöllin þar sem einkaþotan beið þeirra.
Athugið að myndbandið er það langt að það byrjar hér ekki alveg á byrjun en þetta er allt þess virði að líta á, hafi maður gaman yfirleitt áhuga á sturluðum bílum. Svo eru þessi systkyni frá Abu Dhabi frekar skemmtileg.
Annað þessu líkt:
Aðrar umfjallanir
„Þessi náungi er *** klikkaður,“ sagði Hamilton um Verstappen þegar sá síðarnefndi, að því er virtist, hindraði framúrakstur þess fyrrnefnda, en það má deila um hver reyndi hvað. En þvílíkur sirkus í Formúlu 1 í kvöld!
Eftirspurn eftir rafknúnum bílum jókst um tæp 57% og sala tengitvinnbíla um 43% á þriðja ársfjórðungi innan ESB.
Við höfuð áður fjallað um fyrirætlanir Mitsubisi að minnka umsvif sín í Evrópu en í dag segir í frétt á vef Automotive News Europe að fyrirtækið muni draga saman...
Toyota GR Yaris var á Tokyo Auto Salon með nýja íhluti og einstakar nýjar WRC-innblásnar áherslur og ný Rally2 kappakstursútgáfa var sýnd...