Þeir eru kallaðir „sleepers“ í útlöndum; bílar sem líta út eins og druslur en eru algjör tryllitæki í felubúningi. Úlfur í sauðargæru eða eitthvað í þá veru. Hér er frábært dæmi um slíkan bíl.
Í Suður-Afríku býr þetta villidýr sem lítur út eins og gamall lúinn Datsun. Enda er þetta að hluta til gamall og lúinn Datsun. Ekki skyldi þó vanmeta hann því með SR20 Túrbó undir vélarhlífinni og alls konar annað er þetta algjörlega sturluð græja.
Meðfylgjandi er myndband og er útskýrt í smáatriðum hvað eigandinn gerði við bílinn. Þeir sem ekki nenna að hlusta á allt það geta „spólað“ yfir 1:30 mínútu og séð og heyrt bílinn. Annars er þetta myndband mjög töff og vandað í alla staði.
Annað druslulegt:
Aðrar umfjallanir
Maður getur víst ekki verið á mörgum stöðum á sama tíma en það getur Toyota Corolla Cross aftur á móti. Það eru nefnilega komin eintök til landsins og á morgun, laugardag, verður þessi nýjasti meðlimur Corolla-fjölskyldunnar til sýnis og reynsluaksturs á fjórum stöðum á landinu.
Um 50 bíla sending af nýjum Volvo XC40 Recharge tengiltvinnjeppum sem var að koma til landsins var öll seld í forsölu áður en bílarnir komu til...
Brimborg mun í vor opna nýjan Polestar Destination sýningarsal fyrir Polestar rafbíla og á þaki hans verður reist stærsta sólarorkuver á Íslandi og það fyrsta í Reykjavík...
Ljósmyndarar AutoExpress hafa náð næstu langbaksgerð eða stationgerð Volkswagen Golf á mynd, að þessu sinni ásamt Alltrack...