Ef fólk fer í safaríferð ætti ekki að koma á óvart ef dýr verða á vegi ferðalanga. Það gegnir þó öðru máli ef bílstjórinn hefur læst rúðuupphalaranum farþegamegin og úlfaldi rekur inn hausinn. Þá má nú gera úlfalda úr mýflugu…
Fleira óvænt:
Aðrar umfjallanir
Mazda vill enn búa til sportbíl með „snúningsvél“ en segir slíkan bíl vera langt frá framleiðslu
Minnisstæðir eru mér ferðalangarnir sem komu hver af öðrum bröltandi út úr gömlum slökkvibílnum á tjaldstæðinu. Þeir voru löðrandi sveittir, rétt eins og vagninn væri gufubað eða logandi bíll sem þyrfti að slökkva í. En þeir voru kátir og stoltir af bílnum sem þeir höfðu breytt í ferðabíl.
Loks er farmskrá bílaflutningaskipsins Felicity Ace aðgengileg. Þegar rýnt er í hana má sjá að það voru þónokkrir eldri bílar um borð og ótrúlegt en satt; aðeins tveir japanskir! Annar þeirra var árgerð 1996 af hinum fágæta JDM Honda Prelude SiR.
„Ég var orðinn þreyttur á að fólk sæi mig ekki í umferðinni,“ skrifar eigandi Mazda Miata en hann fékk sér flautu í bílinn sem hljómar eins og lestarflauta. Þetta svoleiðis „svínvirkar“ eins og sagt er!