Maður sem vann Mitsubishi Evo IX í bílahappdrætti var virkilega ánægður í tæpa tvo sólarhringa eftir að hann fékk bílinn. Svo tók varð allt vont: Hann eyðilagði bílinn og í kjölfarið fóru leiðindaskilaboð að berast frá ókunnugum.
Adam sótti bílinn daginn eftir að dregið var í happdrættinu og ferðaðist 150 kílómetra eftir þeim rauða. En Adam Griffiths var ekki lengi í paradís því rúmum sólarhring síðar var bíllinn ónýtur eftir harkalegan árekstur í Glyntaff í Pontypridd (skemmtileg nöfnin þarna!).
Áreksturinn var ekki það versta
Sem betur fer slasaðist Adam ekki alvarlega en hann greindi frá því að áreksturinn hefði alfarið verið honum sjálfum að kenna en lögreglan staðfesti við fjölmiðla að hann hefði ekið ógætilega og misst stjórn á bílnum.
„Ég þakka bara fyrir að farþegi minn hafi gengið óskaddaður frá þessu. Það má alltaf finna annan bíl en það sama á ekki við um mannslíf,“ sagði hann í viðtali.
En svo þurfti hann að hætta á samfélagsmiðlum því þegar fréttist af slysinu fór fólk að senda honum alls kyns „drullu“ ef svo má segja.
Mamma gamla blandast í málið
Ókunnugt fólkið hafði þá samband við móður mannsins og ekki voru skilaboðin falleg. Ljótur lýðurinn óskaði honum alls ills og meira að segja var sagt að best væri ef Adam tæki sitt eigið líf.
„Allt þetta út af bíl sem ég vann. Ef ég hefði keypt bíl fyrir sama pening hefði öllum verið skítsama,“ sagði Adam við Wales Online.
Þetta er ótrúlegt og alveg vert umhugsunar því hvað er orðið um það að „samgleðjast náunganum“ og annað indælt sem myndi gera heiminn ögn betri og ákvæðari?
Kallar umfjöllun á meira einelti?
Þessi grein sem birtist um málið í Wales Online var eflaust skrifuð til að vekja athygli á þeirri plágu sem neteinelti er. The Daily Star fjallaði í kjölfarið um þetta og jú, hið ótrúlega gerðist: Í athugasemdum við greinina heldur „yfirdrullið“ bara áfram:
Sjáskita, ég meina skjáskot, af vef Daily Star
Kæru lesendur, sem betur fer er ekki mikið um slík leiðindi í athugasemdum hér hjá okkur en það kemur þó fyrir. Er ekki full ástæða til að gleðjast með öðrum þegar vel gengur, vera kurteis og sýna samkennd þegar illa fer og láta lyklaborðið vera þegar maður hefur ekkert uppbyggilegt fram að færa?
Þetta var nú sunnudagshugleiðingin mín. Góðar stundir!
Annað sem setja má undir sama hatt:
Aðrar umfjallanir
Við höfum fjallað nokkuð mikið um rafdrifna ofursportbílinn Rimac C Two. Hann verður formlega kynntur í endanlegri útgáfu og fær sitt endanlega nafn þriðjudaginn...
Þær amma og amma fóru fyrir fáeinum árum í bíltúr á 650 hestafla Lamborghini. Þær eru svo hrikalega skemmtilegar og skemmta sér svo vel að þetta er alveg ekta sunnudagsbíltúr. Nú skyldi maður ekki kalla allt ömmu sína en ég myndi alveg vilja kalla þessar tvær ömmur mínar.
Þekkir þú tegundina út frá vélarhljóðinu? Eða öllu heldur vélartónlistinni? Hér er skemmtilegt „próf“ sem Auto Evolution hefur búið til fyrir okkur mótorhausana. En er mótorhausinn með „bíleyra“? Taktu prófið!
Öskubílar hafa löngum þótt áhugaverðir og eftir upprifjun á gamalli frétt um mann sem tók öskubíl traustataki á nýársnótt fyrir nokkrum áratugum er ekki laust við að öskubílar hafi nokkrum sinnum komið upp í hugann. Þá mundi ég eftir agalegu atriði!