Leigubílstjórar á rafmagnsbílum

Við hittum nokkra hressa atvinnubílstjóra sem hafa það skemmtiega verkefni með höndum að aka rafbílum alla daga.

Okkur langaði að heyra um reynslu þeirra og muninn á að aka á rafbíl og bíl með brunavél í atvinnuskyni.

Þessir bílstjórar eru: Steindór Björnsson sem ekur Audi e-tron, Atli Sævar Grétarsson á Skoda Enyaq, Guðmundur Gíslason á ID.4 og Þröstur Sigurðsson á Tesla Model Y.

Eru menn straum-stressaðir?

Við spurðum þá fyrst út í hleðslukvíðann. „Það er eitthvað sem við erum löngu hættir að spá í,“ sagði Steindór. „Það var kannski aðeins fyrst en slíkur kvíði er algjörlega óþarfur.“

image

Sama fyrir okkur og aðra

Það kemur ef til vill ekki á óvart að það eru engar sérstakar ívilnanir fyrir atvinnubílstjóra umfram einstaklinga við kaup og rekstur á rafbíl.

Það er kannski álitamál ef litið er á mikilvægi þess að orkuskiptin gangi hratt fyrir sig og upp safnist reynsla og þekking hjá þeim sem aka mest.

image

Of slök innviðauppbygging

Hins vegar voru menn sammála um að takturinn í orkuskiptagöngunni væri ekki alveg nógu hljómfagur. Allt að fyllast af rafbílum en innviðirnir ráða ekki við það.

image

Lamasess á Suðurnesjum

Allir voru sammála um að innviðir væru í algjöru lamasessi á Suðurnesjum. Þar koma flestir túristar til landsins sem ýmist ferðast með langferða-, bílaleigu-, eða leigubílum.

Við flugstöð Leifs Eiríkssonar er ein hleðslustöð staðsett inni á komubílastæðinu og reyndar var hún biluð mestallt árið í fyrra.

Þar er rafmagnið frítt í hálftíma hleðsluholli en þú greiðir 500 kr. til að komast út af stæðinu. Engin hleðslulausn er fyrir leigubíla á stæðinu við flugstöðina en Isavia rukkar leigubílstjóra um hundruð þúsunda á mánuði í aðstöðugjald svo hægt sé að veita farþegum þjónustu.

image

Einokunarsvipan

Hitt er svo annað en það er orkusölufyrirtækið á Suðurnesjum, HS Veitur. Þeir búa svo vel að varla sést í byggingu fyrirtækisins fyrir hátækni hleðslustöðvum sem lokaðar eru öðrum en þeirra eigin bílum – jafnvel eftir lokun, bjóða þeir ekki rafmagn til sölu fyrir rafbílaeigendur í hópi viðskiptavina fyrirtækisins. Þeir vilja selja neytendum rafmagn - bara ekki þarna úr þessum hleðslustöðvum, þær eru bara til skrauts greinilega.

Ótrúlegur heimóttarskapur hjá þessu fyrirtæki – en varla við öðru að búast þar sem fákeppni er við lýði.

Það er ekki mikið um hleðslustöðvar í miðborg Reykjavíkur ennþá, sögðu atvinnubílstjórarnir. Það er ein niðri á Fríkirkjuvegi sem hægt er að komast í ef bíl hefur ekki verið lagt í stæðið. En þetta er í hægri þróun.

Förum ekki aftur í bensín eða dísel sullið

Við ætlum ekki í bensín eða dísel aftur. Það kemur ekki til greina. Það er það mikill munur á rekstrarkostnaði að það bara er ekki inní myndinni.

Dekkin skipta miklu

„Ég fékk mér toppgóð nagladekk og það dugar mér. Þarf ekki fjórhjóladrif,“ segir Guðmundur Gíslason sem ekur á ID.4. „Ég vil ekki missa beygjuradíusinn,“ segir Guðmundur.  

Aðrir í hópnum eru allir á fjórhjóladrifnum bílum sem segja að slíkur búnaður geti skipt sköpum á slæmum dögum í höfuðborginni.

„Hins vegar eru þessir bílar þyngri og maður þarf að passa sig þegar ekið er í gegnum skafla og þæfing að ekkert óvænt sé þar undir því þá er voðinn náttúrulega vís,“ segir Þröstur Sigurðsson á Tesla Model Y. „Ég er ekki að fara á Teslunni það sem ég fór áður á Volvo XC70 Cross Country.

En ég kemst samt alveg, bara á annan hátt. Rafhlaðan er viðkvæm, það er bara þannig.“

Steindór, sem ekur á Audi e-tron segir ótrúlega þægilegt að geta hækkað bílinn upp og ekið þannig í gegnum skorninga á veturna. „Audi-inn er á loftpúðum [fjöðrun] og hægt að hækka bílinn þannig að ég keyri bara yfir ófærðina.“

Farþegarnir sáttir

„Það er vitundarvakning meðal farþega að ferðast með rafbílum. Við fáum talsvert margar spurningar frá farþegum okkar um bílana, tæknina og hvernig það er að aka rafbíl í leigubílaakstri,“ segja strákarnir á Hreyfli að lokum.

Hægt er að horfa á allt viðtalið við leigubílstjórana hér fyrir neðan ( um 25 mínútur).

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is