Þegar Tyler Hoover byrjaði með bílaumfjöllun á YouTube var hann ánægður með sinn gamla Mercedes-Benz 300SD. Áður en hann vissi af var hann búinn að kaupa sér hina ýmsu bíla og bílskúrinn orðinn að „leiðindasafni“ eins og hjá of mörgum YouTube-bílakörlum, að mati hans sjálfs.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1656276008_3588187192676379551_9901912613484147.jpg)
Fyrsti þátturinn var einmitt um þennan Mercedes-Benz 300SD sem var með sjálfskiptingu en Tyler breytti því svona bíll „á að vera beinskiptur“ að hans mati.
Tyler þessi er ákaflega vinsæll en fyrir fimm árum byrjaði hann með rásina Hoovies Garage á YouTube. Nú eru áskrifendur orðnir 1.4 milljónir og það gengur svona líka glimrandi vel hjá stráksa.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1656276009_2417117884132882586_9901913591767837.jpg)
Bílskúrinn, eða öllu heldur innihald bílskúrsins, hefur tekið breytingum sem Tyler er ekki viss um að hann sé ánægður með.
Hugmyndin með rásinni Hoovies Garage var að kaupa alls konar bíla, laga þá jafnvel og fjalla um ferlið. Druslur og ekki druslur. Bara alls konar. Eins og til dæmis þennan Dodge Caravan frá 1991.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1656276010_3760957036345025055_9901914574787739.jpg)
Á þessum parketbíl fór hann á staði sem „enginn hafði áður farið á minivan“ eins og hann orðaði það .
Áhorfið fór úr nokkur þúsund upp í nokkrar milljónir á fáeinum árum. Hátt í 6 milljónir manna hafa horft á vinsælasta myndbandið hans og þau eru býsna mörg hjá honum sem notið hafa álíka vinsælda.
Í þessum þætti fer hann aðeins yfir málin og rifjar upp hversu dásamleg tilfinning það er að aka um á fornbíl sem enga hefur loftkælinguna og sætisáklæðin eru úr velúrefni. Jæja, hér er kauði: Tyler Hoover!
Fleiri bílasafnarar en þó ekki af „leiðinlegu“ gerðinni:
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1629916806_1693547996982553440_1121826694618941.jpg)
Charlie Watts í Rolling Stones átti glæsilegt bílasafn, sérsniðin föt sem hentuðu hverjum bíl en ekkert ökuskírteini!
![](https://img.bilaskra.is/images/1612438898_1924149247176342361_320817530000.jpg)
Skoda Octavia var í fimm efstu sætunum yfir selda bíla í 13 Evrópulöndum fyrstu 11 mánuði ársins og toppaði Renault Clio á fjórum mörkuðum og Volkswagen Golf á fimm...
![](https://img.bilaskra.is/images/1612439425_5293130023154030815_847828336000.jpg)
Sá sem þetta skrifar hefur oft verið spurður að því hvaða bíll sé sá flottasti sem af þeim bílum sem eru minnisstæðir frá 47 ára tímabili sem bílablaðamaður...
![](https://img.bilaskra.is/images/1648071606_1468191641887237978_1697511532278491.jpg)