Lightyear 0: Hleðsla á nokkurra mánaða fresti?
Sólarorkubíll sem þarf ekki að hlaða nema á nokkurra mánaða fresti? Lightyear 0 er sagður sá bíll sem kemst næst því að vera sjálfbær. Það er hugmyndin að baki hollenska sólarorkubílnum sem er sá fyrsti sinnar gerðar í heiminum sem seldur er á almennum markaði.
Skjáskot/Lightyear.one
Þetta hljómar virkilega eins og eitthvað úr vísindaskáldsögu og ef ekki væri fyrir þá staðreynd að bílablaðamenn hafa verið að reynsluaka bílnum undanfarna daga þá myndi maður halda að þetta væri einhver vitleysa.
Vitleysa er þetta ekki, heldur 250.000 dollara bíll (34 milljónir króna) sem framleiddur verður í 946 eintökum og fyrstu bílarnir verða afhentir í nóvember á þessu ári.
Best er að leyfa myndböndunum að útskýra þetta frekar. Fyrst er stutt kynning frá framleiðanda og svo reynsluakstur þar fyrir neðan.
Aðrar umfjallanir
Þegar stríðs- og kappaksturkerrur komu til sögunnar þá dugði vatnið ekki lengur, þá þurfti eitthvað annað - smurefni. Líklega hefur kviknað í einhverjum hjólum áður en einhverjum...
Um nýliðna helgi, 28. og 29. september stóð Rafbílasambad Íslands og Smáralind fyrir kynningu á rafbílaframboði hérlendis. Sjá mátti hreina rafbíla frá Bílabúð Benna, BL, Heklu og Öskju.
Það gerist ekki betra en þetta: Sá besti af þeim bestu. Hyundai SEVEN hugmyndabíllinn vann til Red Dot verðlaunanna 2022 „Best of the Best“ en það eru virt hönnunarverðlaun.
Flestir ökumenn eru á því að þeir séu góðir bílstjórar og sannfærðir um að færni þeirra sé vel yfir meðaltali og allt það. En það eru ýmis atriði sem einkenna lélega bílstjóra og hér eru þau helstu.