Fyrir rúmum mánuði síðan var hinn tvítugi Anthony Perry á leið til vinnu, eins og aðra virka daga, þegar hann kom auga á mann sem lá hreyfingarlaus á lestarteinunum. Perry gerði það sem allir ættu að gera en fáir myndu í raun og veru gera. Hann bjargaði manninum.
Perry er býr í Chicago. Hann er nokkuð vel að sér þegar kemur að almenningssamgöngum því hann þarf að skipta um strætisvagn á leiðinni í vinnuna og síðasta spölinn fer hann með lest. Þetta tekur tíma en svona er rútínan.
Mánudag nokkurn í síðasta mánuði tók hann eftir að maður lá á járnbrautarteinunum þar sem Perry vippaði sér út úr lestinni. Maðurinn virtist með litla ef nokkra meðvitund og því stökk Perry niður á rafmagnaða teinana.
Þeim tókst að lífga manninn við en sá hafði fengið rækilega á lúðurinn í slagsmálum með fyrrgreindum afleiðingum; hann hrundi niður á rafmagnaða lestarteinana og fékk raflost.
Maðurinn var fluttur á sjúkrahús og virðist hafa lifað af. Víkur þá sögunni aftur að alþýðuhetjunni, hinum tvítuga Perry.
Bensínkort að gjöf
Early Walker er maðurinn sem stofnaði samtökin I’m Telling Don’t Shoot (sem hafa það að markmiði að losa Bandaríkin við byssubrjálæðinga og stuðla að friði) og afhenti hann Perry 25 dollara bensínkort í viðurkenningarskyni og sagði: „Við vildum sýna í verki hversu mikils við metum þig og það mættu fleiri vera eins og þú. Heimurinn þarf á fleiri Anthonyum að halda,“ sagði Walker.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1657867207_3505982139587151257_11493111856349253.jpg)
„Vá,“ sagði Perry og brosti út að eyrum. „Kærar þakkir. Það kann ég vel að meta,“ sagði hann þakklátur. En staðreyndin var sú að engan átti hann bílinn til að dæla bensíninu á.
Þá heyrðist bílflaut og stór trukkur kom akandi með stærri gjöf á pallinum: Audi A8 árgerð 2009.
Perry greip fyrir munninn og var að vonum orðlaus. Myndin af honum er falleg.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1657867208_8326677686565332722_11493113310895618.jpg)
Ljósmyndir/héðan og þaðan/Facebook/ChicagoSun
Yfirlögregluþjónn að nafni Roderick Watson var á meðal viðstaddra og sagði hann að það væri mikilvægt að sýna Perry að hann hefði unnið afrek.
Á meðan Perry stökk niður á teinana og gerði og græjaði stóð fjöldi fólks og horfði á, mjög margir með síma á lofti og stillt á upptöku. En færri komu til hjálpar. Nei, fólk var upptekið við að deila myndböndum í rauntíma á samfélagsmiðlum.
„Þegar ég horfði sjálfur á myndbönd af þessu og lagði við hlustir þá var nokkuð ljóst að fólk var hrætt en enginn gerði neitt. Fólk vildi bara taka myndband af þessu,“ sagði Perry í samtali við dagblaðið Chicago Sun Times.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1657867209_2905086728689894939_11493114107339354.jpg)
Anthony Perry og Early Walker eftir bensínkortsbrandarann.
Glaður í bragði sagði Perry að bíllinn myndi koma í góðar þarfir. Eftir langar vaktir í vinnunni hefur það oft gerst að hann sofni í lestinni á leið heim og bruni framhjá sinni stöð. Vonandi verður hann ekki eins þreyttur þegar hann ekur þessum fína A8 til og frá vinnu, laus við alla strætisvagnana og lestarklefana.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1657867210_4669563684726209242_11493115221748952.jpg)
Fleiri sögur af góðu fólki og bílum:
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1669016411_2071436511380986634_22642315956008222.jpg)
Nokkrar myndir af væntanlegri rafdrifnum crossover frá Buick, Electra E5, hafa lekið út í Kína...
![](https://img.bilaskra.is/images/1640025606_7594252114894348376_593643717704063.jpg)
Tesla hefur aukið fágun farþegarýmis í nýjustu Model S og Model X í nýjustu hugbúnaðaruppfærslu sinni, sem virkjar hávaðaminnkandi kerfi í bílnum....
![](https://img.bilaskra.is/images/1612443300_1212635006276141901_4722779919000.jpg)
Það er oft gott að bera saman umferðarmenningu ólíkra landa og svæða. Svo hagar til hér á Spáni sem blaðamaður bílabloggs dvelur þessa dagana að hann er staddur í litlum strandbæ...
![](https://img.bilaskra.is/images/1612441427_2619051479993680888_2849046727000.jpg)
Samkvæmt bílavefnum Autocar á Englandi hefur Volkswagen kynnt nýtt útlit á T-Roc, með dökkum áherslum í útliti og uppfærðum búnaði fyrir...