Ekki jepplingur heldur torfærubifreið
Í gamla daga var ekkert verið að skafa utan af hlutunum. Það var ekki talað um jeppling, sportjeppa, krossover eða SUV.
Þegar Subaru kom til tals var ekkert annað en orðið „torfærubifreið” notað um bílinn, svo öflugur þótti kagginn.
Hér á landi var þetta einfaldlega Subaru 4WD, ekki Leone eins og hann hét heimafyrir.
Í febrúar 1979 auglýsir nefnilega Ingvar Helgason: „Torfærubifreiðin sem sem sameinar kosti fólksbíls og jeppa.”
Í sömu auglýsingu eru ummæli frá þremur viðskiptavinum sem segja frá upplifun sinni á bílnum.
Eigendur voru ánægðir
Í neðangreindri auglýsingu frá árinu 1979 má sjá tvö önnur ummæli frá þeim Sigurði Jónssyni kennara og bónda á Ystafelli, Suður-Þingeyjarsýslu og Eyjólfi Ágústssyni bónda í Hvammi í Landssveit.
Subaru er einn af fyrstu fjórhjóladrifnu fólksbílunum en bíllinn varð strax óhemjuvinsæll á markaðnum.
Í Bandaríkjunum var eftirspurn meiri en framboð og verksmiðjurnar höfðu ekki undan að framleiða.
Sagt var að Subaru væri bíll þeirra sem stunduðu jóga og gengju um á Birkenstock, karla sem reyktu pípu og kvenna sem gengju á fjöll. Hvað satt er í þeim efnum læt ég kyrrt liggja.
Ótrúlega eftirminnilegur bíll. Þennan bíl langaði marga í þegar hann kom nýr í sölu hjá Ingvari Helgasyni.
Óvíst hvað ætti að kalla þetta
Ómar Ragnarsson reynsluók Subaru í lok janúar árið 1977. Ómar segir í reynsluakstursgreininni að það vanti orði í málið sem túlkar fólksbíl með drifi á öllum hjólum.
Næstum því ljótur en mjög vinalegur samt.
Smá kettlingur í húddinu
En hugsið ykkur: Subaruinn var með 1361 rúmsentimetra vél sem gaf nettó um 59 hestöfl. Bíllinn var ekki nema 970 kíló og var um 19 sekúndur frá núlli upp í hundrað kílómetra hraða á á klukkustund.
Aðeins innskeifur að aftan, svona pínu eins og Skodinn var.
Hæð undir lægsta punkt var 21 sentimetri og fullhlaðinn lækkaði lægsti punktur niður í 17 sentimetra.
Aðeins grófari fyrst
Subaruinn var dálitið hastur og fyrstu árgerðirnar voru svolítið óþéttar – þeir fylltust auðveldlega af ryki á þurrum malarvegum landsins.
En hann fór allt sem menn ætluðu sér. Lullaði þetta í rólegheitunum og var ótrúlega duglegur.
Subaruinn var líka til 4WD í stallbaksútgáfu. Algjörlega öðruvísi bíll en þeir sem voru í sölu á sama tíma.
Hann fékkst einnig sem kúpubakur.
Boxerinn stóð sig vel
Vélin í Subaru er boxer (eins og mótor í flugvél, þar sem stimpilhólfin liggja lárétt) en hún er þverstæð og liggur neðarlega í vélarsalnum.
Þessi er í góðu stuði á einhverri bíla- og flugsýningu. Takið eftir hve trýnið á honum er langt.
Hér á landi var Subaruinn með eindæmum vinsæll. Ég hef átt nokkra sjálfur og ég man eftir að árið 1986 seldust skutbílar af þessari gerð betur en heitar lummur. Foreldrar mínir áttu 1987 Subaru turbo kúpubak, alveg einstaklega skemmtilegur og eftirminnilegur bíll.
Eftirminnilegast frá Subaru-árunum er vélarhljóðið sem þótti sérstakt, hill-holder græjan sem gerði að verkum að bíllinn rann ekki afturábak í brekku þegar tekið var af stað og tjakkurinn sem maður hækkaði bílstjórasætið með. Allt góðar minningar.
Þriðja kynslóð var gríðarlega vinsæl á Íslandi.
Að lokum er hér myndband sem sýnir gamla góða Subaru 4WD etja kappi við splunkunýjan Wrangler Rubicon í óbyggðum Utah. Gaman að sjá hversu ötull Subaruinn er í alls kyns vegleysum.
Myndband
Myndir: víðsvegar af vefnum, Veoautos.cl og Carinfo.
Aðrar umfjallanir
Vatnskassagrillið, sem eitt sinn var virkur hlutur, síðar hluti af andlitum vörumerkja og í framtíðinni staður fyrir skynjara: Mercedes sýnir þróun „grillsins“ í gegnum tíðina með augum Auto, Motor und Sport.
Pontiac Firebird er einn ástsælasti sportari sem framleiddur hefur verið í Bandaríkjunum. Bíllinn sá tórði í fjórar kynslóðir frá 1967 til 2002. GM setti bílinn á markað...
Annars vegar virðast Samsung og Toyota (og fleiri) vera sammála um það að rafbílarafgeymar framtíðarinnar verði svokallaðar solid state rafhlöður...
Stór, sjö sæta rafmagnsjeppi er í burðarliðnum fyrir Skoda og þessar nýútgefnu teikningar gefa hugmynd um útlitið á þessum væntanlegri keppinaut Kia EV9. Áætlað er að frumsýna bílinn síðar í þessum mánuði sem hugmyndabíll sem kallaður er „Vision 7S“ og mun nýja gerðin vera leiðandi í endurgerðri hönnun fyrirtækisins inn í raföldina.