Skipt um dekk á bíl… á ferð!
Það er verulega vond hugmynd að skipta um dekk meðan bíllinn er á ferð. En það fannst þeim Manuel Zoldan og Gianluca Folco þó ekki. Þvert á móti fannst þeim það nógu frábær hugmynd til að skipta þannig um dekk á skemmri tíma en nokkrum öðrum.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1658342408_5161436305877087333_11968313498775142.jpg)
Já, þessir Ítalir hafa gert eitthvað voðalegt við BMW-inn (útlitslega séð) og „dressað“ sig upp í stíl við bíl. Tilefnið? Heimsmet í því að skipta um dekk á bíl á ferð. Annar ók á stöðugum hraða á meðan hinn skipti um framdekkið og það tókst á 77 sekúndum.
Sennilega með kjánalegri bílatengdum heimsmetum sem ég hef fjallað um en trúið mér; það verður eflaust toppað áður en langt um líður.
Fleiri heimsmet tengd akstri og ökutækjum:
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1660520405_4404350611044751499_14146309966627290.jpg)
Þetta þótti manni nú gaman að lesa áður en lagt var af stað í skólann á þriðjudagsmorgnum, já svona upp úr 1990: Úr dagbók lögreglunnar í Reykjavík. Þvílíkar sögur!
![](https://img.bilaskra.is/images/1661798408_4247734789667737096_15424312764535238.jpg)
Samkvæmt fréttum frá Reuters og Bloomberg- stefnir Elon Musk forstjóri Tesla, að því að gera sjálfkeyrandi tækni bílaframleiðandans tilbúin fyrir árslok og vonast til að hún gæti verið í almennri útgáfu í Bandaríkjunum og hugsanlega í Evrópu, háð samþykki eftirlitsaðila.
![](https://img.bilaskra.is/images/1616445606_8289470707286086945_2291022582062744.jpg)
Um miðjan sjötta áratuginn hafði breski lúxusbílaframleiðandinn Rolls-Royce sérstöðu á bílamarkaði heims með sína vönduðu...
![](https://img.bilaskra.is/images/1661438407_8516354383735104042_15064311982591744.jpg)
Ferrari sem lítur furðulega út? Þeir eru nokkrir. En hér er einn sem er byggður á LaFerrari Aperta og já, það er alveg hægt að klóra sér í kollinum yfir þessum.