Marteinn Jónsson nýr framkvæmdastjóri Veltis – Volvo atvinnutækjasviðs Brimborgar
Marteinn Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Veltis – Volvo atvinnutækjasviðs Brimborgar.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612440103_2870779373838951501_1525160310000.jpg)
Marteinn er viðskiptafræðingur frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og hefur lengst af starfað hjá Kaupfélagi Skagfirðinga á Sauðárkróki sem framkvæmdastjóri verslunar- og þjónustusviðs.
Marteinn býr að langri reynslu í stjórnun og mikilli reynslu af rekstri öflugs þjónustuverkstæðis en undir hann heyrði véla-, bíla og rafmagnsverkstæði Kaupfélagsins á Sauðárkróki fyrir fólksbíla og önnur atvinnutæki. Marteinn er kvæntur Bertínu Guðrúnu Rodriquez, fjármálasérfræðingi hjá Reykjavíkurborg.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612440104_8190111543539331337_1526277511000.jpg)
Veltir – Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar er eitt af sex viðskiptasviðum hjá Brimborg. Veltir er sölu- og þjónustuumboð fyrir Volvo vörubíla,
Volvo vinnuvélar, Volvo rútur og Volvo Penta bátavélar ásamt Hiab hleðslukrönum fyrir vörubíla. Veltir veitir eigendum atvinnutækja heildstæða þjónustu í framúrskarandi aðstöðu á Hádegismóum 8 sem opnuð var í nóvember 2018. Verkstæði Veltis á Hádegismóum er það fullkomnasta í greininni með góðu aðgengi frá stofnbrautum og mjög góðu athafnarými fyrir stór tæki.
„Við erum mjög ánægð með að fá Martein til að taka við og leiða Veltisteymið inn í spennandi tíma en framundan er mikill uppgangur í innviðauppbyggingu á Íslandi.
Veltir mun leika þar stórt hlutverk með sterk vörumerki, reynslumikla fagmenn og einstaka aðstöðu til að veita framúrskarandi þjónustu“ segir Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar.
„Ég er mjög spenntur fyrir að hefja störf hjá Velti og sé gríðarlega möguleika með þeim framúrskarandi sérfræðingum sem þar starfa í frábærri aðstöðu á Hádegismóum með öflug vörumerki“ segir Marteinn.
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1622846427_3083630377653917267_5586691414823994.jpg)
TOKYO - Nissan seinkar komu flaggskipsins Ariya, rafknúna sportjeppans á markað, og undirstrikar þá baráttu sem bílaframleiðendur standa frammi fyrir...
![](https://img.bilaskra.is/images/1655566806_4866612090964505907_9192710575380976.jpg)
Eða hvað? Nei, í raun og veru er erfitt að sjá afleiðingarnar fyrir þegar ótrúlega margt fer úrskeiðis á sama tíma. Hér er dæmi um samansafn minniháttar mistaka sem höfðu meiriháttar afleiðingar. Þetta gerðist í Minnesota í síðustu viku.
![](https://img.bilaskra.is/images/1640068809_3638546270743861420_636846814977208.jpg)
Þetta var löng fyrirsögn! Þó hann sé nú ekki hár í loftinu, hann Bottas, er afrekalistinn langur. Þessi finnski Formúlu 1 ökumaður hefur marga fjöruna sopið, margan bikarinn unnið og marga kaffibaunina brennt. Lítum nánar á manninn.
![](https://img.bilaskra.is/images/1675024814_4863266266891261305_28650719010192551.jpg)
Audi mun setja yfir 20 nýja bíla á markað fyrir árið 2026 í meiriháttar vöruþróun...