Ford F-150 Lightning sem lögreglubíll
Sérstök „police-duty“ útgáfa af hinum magnaða F-150 Lightning Pro SSV rafpallbíl var kynnt í gær í Bandaríkunum en þetta er mikið ofurtæki.
Ford hefur smíðað lögreglubíla í rúm 70 ár en nú er komið að rafmagnspikkaranum.
Hann er innan við 4 sekúndur úr kyrrstöðu upp í 100 kílómetra hraða en fjölmargir kostir þessa ökutækis eru tíundaðir í myndbandinu hér fyrir neðan.
Meðfylgjandi myndir eru frá Ford.
Aðrar umfjallanir
Hér er Suzuki Vitara sem hefur vakið töluverða athygli. Þá einkum og sér í lagi sérsmíðað grillið og framljósin. Sá sem þessi afrek hefur unnið hefur líka breytt Daihatsu Feroza og virðist luma á ýmsum hugmyndum.
Bifvélavirkinn síbölvandi og „lausnamiðaði“ sem leikinn var af Sigga Sigurjóns kom hér við sögu fyrir ekki svo löngu. Krummi, sem barði bíla sundur og saman í Spaugstofunni fyrir margt löngu síðan, er algjör snilldarkarakter.
Allt frá ökuprófi þar sem enginn er prófdómarinn, til ökuprófs þar sem lögregluþjónar sitja aftur í bílnum og fylgjast með… Kröfurnar eru breytilegar eftir því hvar á jarðarkúlunni ökuprófið er tekið.
Fiat 500, eða cinquecento er greinilega ítölsk hönnun, líkt og Vespa, ímynd bílsins er almennt tengd Ítalíu. Upprunalega hét Fiat 500, Topolino, sem þýðir að „litla músin“...