Nýr Suzuki Ignis afhjúpaður með útlitsbreytingu og með bættri hybrid-drifrás

    • Litli Suzuki Ignis „crossover“ hefur fengið fíngerða andlitslyftingu, með handfylli af útlitsbreytingum og endurnýjuðu blendingskerfi með rafmag. Og grillið minnir svolítið á Jeep

Samkvæmt bílavefsíðum, þar á meðal Auto Express, hefur Suzuki kynnt minni háttar breytingu á litla Ignis smájeppanum, eða „crossover“ eins og vinsælt er að kalla þessa bíla í dag fyrir árgerð 2020 og bætt við handfylli af útlitsbreytingum, smá viðbót af tækni og endurbættri útgáfu af 1,2 lítra hybrid-tvinntækni. Þessi endurskoðaða gerð er komin í sölu í Bretlandi núna og verðið byrjar frá 13.999 pundum.

image

Grillið óneitanlega með svip frá Jeep

Ytri breytingar miðað við fráfarandi Suzuki Ignis er meðal annars nýtt grill með fimm nýjum áherslum, sem í fjarlægð minnir óneitanlega á grillið á minni jeppunum frá Jeep, breytingu á yfirbragði framendans og á stuðara að aftan og nýjar undirvagnsvarnir.

Kaupendur hafa einnig val um þrjá nýja lakkáferðir - Caravan Ivory Pearl Metallic, Rush Yellow Metallic og Tough Khaki Pearl Metallic.

image

Stafræn tækni að innan

Að innan fá kaupendur nýtt stafrænt mælaborð með svartri og hvítri umgerð og tvo nýja liti á innréttingu til viðbótar - Lazuli Medium Blue Pearl og Medium Grey Metallic. Eins og fráfarandi gerð, þá er líka sjö tommu skjár fyrir upplýsinga og afþreyingarkerfi í miðju.

image

Vélin endurbætt

Suzuki hefur einnig ednurbætt 1,2 lítra fjögurra strokka bensínvél bílsins og bætt við nýju eldsneytisinnsprautunarkerfi, nýju breytilegu kerfi á ventlastýringu, nýrri olíudælu og rafstýrða kælingu stimpla - sem atriði sem gagnast hagkvæmni vélarinnar að sögn Suzuki . Tölur um afl og togi eru 82 hestöfl og 107 Nm tog.

Hybrid-kerfið líka uppfært

Uppfærslurnar hafa einnig náð til Hybrid kerfisins í Ignis. Tæknin er staðalbúnaður á öllu sviðinu, með endurskoðun þ.mt rafhlöðupakka með meiri afkastagetu og endurbættum reimarstýrðum rafal/ræsi, sem Suzuki segir að muni gefa eldsneytishagnaði sem nemur 5,07 l/100 km og CO2 losun upp á 114 g / km.

image

Sem staðalbúnað sendir 1,2 lítra tvinnbíllinn drifkraft sinn til framhjólanna um fimm gíra handskiptan gírkassa, þó að kaupendur geti áfram fengið Ignis með fjórhjóladrifi. Þá er nú endurskoðaður Ignis mögulega fáanlegur hið minnsta á Bretlandsmarkaði með CVT gírkassa á SZ-T og SZ5 gerðinni.

image

Suzuki Ignis: sérstakur búnaður

Auto Express segir frá því að hefðbundinn búnaður fyrir uppfærðan Ignis SZ3 í grunngerð á Bretlandi innifelur 15 tommu stálfelgur, LED aðalljós, sex loftpúða, samlitaða hurðarspegla, rafstýrðar hliðarrúður að framan, litaðar rúður að aftan, loftkæling og DAB útvarp með Bluetooth-tengingu.

SZ-T er betur búinn

SZ-T gerðir fá 16 tommu álfelgur, þakboga, breiðari hjólboga, bakkmyndavél og snertiskjá fyrir upplýsinga- og afþreyingarkerfi með stuðningi við Apple CarPlay og Android Auto.

image

Ólíkt grunngerðinni fá kaupendur fjögur í stað fimm sæta, þar sem staðlaðri afturbekknum er skipt út fyrir par af sérstæðum afturstólum á sleða.

Toppútgáfan enn betur búin

Toppútgáfan af Suzuki Ignis, SZ5 gerðin fær par af þokuljósum að framan, sjálfvirka loftkælingu, gervihnattaleiðsögn, lykillaust aðgengi og rafstýrðar rúður að aftan - ásamt ýmsum aðstoðartækjum ökumanns, svo sem akreinavara og tvöfaldur hemlabúnaður tengdur myndavél , sem getur beitt hemlunum fyrir fram í slysi.

Hér má lesa reynsluakstur Bílabloggs á Suzuki Ignis.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is