Hér segir frá stýrimanni nokkrum sem átti engan bílskúr en hann átti tré. Hann bráðvantaði bílskúr en vildi ekki fórna trénu sem tók töluvert pláss á lítilli lóðinni. Stýrimaðurinn fann lausn á þessu.
Ekki vitum við þó til þess að neinn sé í þessu efni jafn róttækur og Halldór Halldórsson stýrimaður að Sólvallagötu 9.
Halldór átti engan bílskúr, en hann átti hins vegar tré. Það var sýnt að ekki kæmist hvorttveggja fyrir í garðinum, bílskúrinn og tréð. Halldór vildi ekki missa tréð, en vantaði hins vegar bílskúrinn sárlega. Hann greip því til þess ráðs að byggja bílskúrinn utan um tréð. Tréð stendur í öðrum enda bílskúrsins og er ekki fyrir neinum en teygir sig upp í gegnum bílskúrsþakið þar sem það er fyrir allra augum og yndi hið mesta. Halldór fékk sér bílskúr og hélt sínu tré, sem nú blómstrar ágætlega í þakklætisskyni.“
![image](https://img.bilaskra.is/images/1659912007_2393353760613256421_13537911878157211.jpg)
„Hér sést hvernig tréð í bílskúrnum teygir sig upp úr þakinu og bæði tréð og eigandinn séu hæstánægð með þessa nýju tilhögun,“ segir í myndatexta við fréttina í Vísi sumarið 1977.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1659912008_3255957611360712620_13537912778711357.jpg)
„Tréð er með þeim hraustlegustu í garðinum, enda þótt það vaxi úr dálítið óvenjulegum jarðvegi. Hjá trénu stendur Halldór Halldórsson stýrimaður sem byggði bílskúrinn og klappar því kumpánlega á öxlina.“
Af öðrum trjám:
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1666021206_1240193703165060451_19647110979412642.jpg)
Bílarnir frá Jeep eru á leið til hreinna rafknúinna rafmagnsbíla – og viðleitni hins þekkta bandaríska vörumerkis verður virkilega sýnileg með komu Avenger jeppans, sem hefur verið frumsýndur opinberlega á bílasýningunni í París.
![](https://img.bilaskra.is/images/1637736006_5071077301880551809_5310605942195302.jpg)
Hvað felst í því að vera liðsstjóri í Formúlu 1? Það er útskýrt hér á einni mínútu!
![](https://img.bilaskra.is/images/1612440682_8482505092076812964_2104211666000.jpg)
Á góðviðris fimmtudagskvöldum mæta flottir bílar af öllum gerðum og stærðum, þar sem eigendur þeirra deila bæði sögum og njóta góðs félagsskapar...
![](https://img.bilaskra.is/images/1643733606_8282360651831159942_125379430136815.jpg)
Það er gaman að greina frá þeirri húmorísku staðreynd að það sem flestir lásu í janúarmánuði á Bílabloggi var einmitt greinin um efnið sem Facebook hafnaði 2021. Þess vegna prófuðum við að magna færsluna með öllum „stórvarasömu“ greinunum og „voilà“: Hún flaug í gegn!