Land Cruiser 300 eða Defender?
Þetta er í raun og veru ekki samanburður í þeim skilningi orðsins sem hér myndi eiga við en burtséð frá því er þetta frekar flott myndband af tveimur þokkalegum ökutækjum. Toyota Land Cruiser GR Sport og Land Rover Defender í svolitlum torfærum.
Ekki ætla ég að hafa um það fleiri orð en örugglega frekar gaman að aka bílunum tveimur við þessar aðstæður. Sérstaklega ef maður kemst hjá því að þrífa eftir skreppitúrinn!
Þetta er eiginlega dálítið sýnishorn en á YouTube-rásinni Drive Your Way má finna lengri útgáfur þar sem bílarnir eru prófaðir almennilega, hvor í sínu lagi.
Ekki svo fjarskylt:
Aðrar umfjallanir
Á jóladag 1878 fæddist drengur í svissneska bænum La Chaux-de-Fonds í Jura-fjöllum sem átti að breyta heimi bílsins að eilífu...
Þá erum við komin í síðasta kaflann yfir bílana sem Autocar vefsíðan hefur tekið saman, lista yfir 55 sérstæða hugmyndabíla...
Corvette Nomad var kynntur á GM Motorama sýningunni á Waldorf Astoria hótelinu í New York árið 1954. Síðan hefur Waldorf nafnið fylgt bílnum...
Næsta kynslóð Fiat Tipo mun skipta úr hlaðbaki yfir í crossover í fjölskyldustærð...