Mercedes og Rivian tilkynna samstarf um rafbíla

Þessi samvinna leiðir af sér að rafbílaframleiðandinn Rivian og Mercedes framleiða stóra rafbíla í sameiningu

Mercedes-Benz og bandaríski rafbílaframleiðandinn Rivian hafa komist að samkomulagi um að vinna saman að því að framleiða stóra, hreina rafknúna sendibíla. Stefnan miðar að því að draga úr þróunar- og framleiðslukostnaði fyrir bæði fyrirtækin með fyrstu gerðum sem verða búnar til frá samstarfinu sem hefst árið 2025.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þýskur framleiðandi hefur tekið höndum saman við bandarískt fyrirtæki til að framleiða rafbíla, því samvinna hefur verið á milli Ford og Volkswagen, sem hafa verið samstarfsaðilar síðan 2018.

image

Benz eSprinter – rafmagnaður sendibíll frá Mercedes Benz

image

Rivian hefur slegið í gegn vestanhafs með rafknúnum sendibílum fyrir Amazon Prime

Mercedes segir að þetta nýja samstarf muni skila sér í að minnsta kosti tveimur stórum sendibílum, annar byggður á VAN.EA (Vans Electric Architecture) Mercedes og hinn byggður á annarri kynslóð Light Van grunni Rivian (RLV).

RJ Scaringe, framkvæmdastjóri Rivian, sagði um tilkynninguna: „Við erum ánægð með að eiga samstarf við Mercedes-Benz um þetta verkefni. Mercedes-Benz er eitt af þekktustu og virtustu bílafyrirtækjum heims og við trúum því að saman munum við framleiða ótrúlega rafknúna sendibíla sem munu ekki aðeins gagnast viðskiptavinum okkar, heldur plánetunni.“

Mathias Geisen, yfirmaður Mercedes-Benz Vans, bætti við þetta: „Mercedes-Benz Vans hefur öðlast víðtæka reynslu í framleiðslu og kynningu á eVans síðan 2010. Nú erum við að flýta umbreytingu í fullkomlega rafknúna vörulínu. Frá og með 2025 verða allir sendibílar byggðir á nýjum grunni okkar VAN.EA eingöngu fyrir rafmagn. Ég er ánægður með að sem hluti af þessari umbreytingu erum við nú að sameina krafta Rivian - mjög kraftmikinn og hvetjandi samstarfsaðila með sterka tæknistöðu."

image

Mercedes er í augnablikinu með eVito pallbíla, eSprinter, eVito Tourer og EQV sem mynda alrafmagnaða línu bíla. Það munu koma nýjar viðbætur fljótlega með væntanlegum eCitan, EQT og annarri kynslóð eSprinter - sem mun koma á markað árið 2023. Líf þess eSprinter gæti þó verið stytt í ljósi væntanlegs VAN.EA grunns sem ætlað er að frumsýna sendibíl af svipaðri stærð árið 2025 .

(frétt á vef Auto Express)

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is