Einstakar bílamyndir úr Íslandsferð 1934
Hollenski ljósmyndarinn Willem van de Poll kom hingað til lands árið 1934 með skipinu Dronning Alexandrine. Ferðaðist hann um Ísland ásamt þýska blaðamanninum Anitu Joachim en hún skrifaði um land og þjóð. Auðvitað bregður bílum fyrir í ljósmyndasafninu!
Willem van de Poll rakar sig á meðan Anita Joachim skrifar. Myndir/Van de Poll/nationaalarchief.nl
Áður en lengra er haldið er rétt að kynna hinn magnaða ljósmyndara aðeins betur. Willem van de Poll (1895-1970) var einn þekktasti ljósmyndari Hollands. Hann vann fyrir ýmis blöð og tímarit (Panorama, Spiegel, Vogue, Harper´s Bazaar o.fl) auk þess sem hann var hirðljósmyndari hollensku konungsfjölskyldunnar.
Morgunblaðið, 28. júlí 1934
Hollenska ljósmyndasafnið hefur gefið leyfi til að birta þessar mögnuðu myndir sem Willem van de Poll tók hér 1934 en þær eru sannarlega mun fleiri en birtar eru hér. Undirrituð valdi auðvitað bara „bílamyndir“ til að birta hér á Bílabloggi!
Mun ég hafa sem fæst orð um myndirnar enda fátt skrifað um hverja og eina í gagnasafninu hollenska. En eitt er ljóst og það er að myndin hér fyrir neðan er tekin við Gullfoss og forsíðumyndin er frá Korpúlfsstöðum. Og hefst nú myndasýningin!
Anita Joachim hallar sér upp að gullfallegum bíl við Gullfoss.
Blaðamaðurinn Anita Joachim að snæðingi og bíllinn notaður sem borð og stóll.
Vegirnir voru oft mjóir og borgaði sig að fara að öllu með gát.
Ef ekki var farið varlega gat þetta nefnilega gerst:
Virðast ferðafélagarnir hafa staldrað við eins og aðrir vegfarendur. Ekki var minnst á að nokkur hefði slasast.
Þessi mynd (að ofan) er tekin í Húsafelli og þarna má sjá íslenska leiðsögumanninn „Jónsson“ loka hliðinu.
Ætli hann komist yfir?
Allir í bílnum fylgjast vel með!
Þetta hefur verið með eindæmum ævintýralegt!
Er nokkuð laust sem á að vera fast?
Og þá var komið nóg af sulli - tímaröðin þarf þó ekki að vera rétt.
Í námunda við Laxfoss (stóð í myndasafninu)
Reykholt
Reykjadalur við Hveragerði
Kannast lesendur við þennan spítala? Það er nú ekki eins „rúmt“ um hann í dag.
Íslensk snót setur plötu á fóninn (ferðafóninn) - þær voru víst sjö talsins, stúlkurnar íslensku sem ferðuðust saman og urðu á vegi þeirra Willem van de Poll og Anitu Joachim.
Þessi tók að sér að gangsetja bifreiðina. Þetta er ein af íslensku stúlkunum sjö.
Þingvellir
Og að lokum er hér mynd af ljósmyndaranum að störfum:
Ljósmyndarinn ljósmyndaður: Willem van de Poll
Fleiri íslenskar ferðasögur:
Aðrar umfjallanir
Það hljómar vel að „vinna bíl“ og tilhugsunin er góð. Flest okkar „vinna fyrir bíl“ enda hverfandi líkur á að hreppa hnossið í bílahappdrætti.
Ódýri rafbíllinn frá Volkswagen, sem sýndur var sem ID Life crossover-hugmyndabíll á bílasýningunni í München í september, hefur fallið...
Nýr Polestar Grand Tourer kostar um 21.443 þús. krónur...
Bandarískasprotafyrirtækið Hyperion mun afhjúpa vetnisknúna XP-1 ofursportbílinn sinn ínæsta mánuði og lofar afköstum...