Sígarettukveikjarinn: Enn eimir eftir af honum
Þegar sonur minn var lítill sagði ég eitt sinn: „Þú þarft bara að stinga þessu í sígarettukveikjarann,“ og augnaráðið sem ég fékk var áhrifaríkt. Það sagði mér margt. Ekki bara að ég væri tekin að reskjast „fyrir aldur fram“ heldur líka að einu sinni reykti fólk sígarettur í bílum og sígarettukveikjarinn þótti sjálfsagður búnaður.
Rétt er að taka fram að ég var að tala um 12-volta tengið og enginn að fýra í eiturnagla í bílnum.
Mynd/Unsplash.com
Sem betur fer þurfti ég aldrei að hoppa og skoppa öryggisbeltislaus aftur í bíl sem var fullur af reyk. Auðvitað voru ekki belti í öllum bílum þegar ég var pottormur en mér fannst það bara svo „lýsandi“ að orða þetta svona: Allt í óreiðu, börnin að slást og foreldrarnir sáu ekki til þeirra gegnum reykskýið.
Hér er skjáskot úr Vikunni frá árinu 1953 og er það ættað úr brandarahorninu:
Skoda var auglýstur svona árið 1955:
Texti úr Ramblerauglýsingu árið 1963:
Úr bílaauglýsingu í ársbyrjun 1984. Hér var Nissan Micra auglýstur og sígarettukveikjarinn snemma í upptalningunni á búnaði bílsins:
Eftir 1990 var svo gott sem alveg hætt að minnast á sígarettukveikjara í bílaauglýsingum í íslenskum blöðum. Enda tóbaksvarnir á spretti hér á landi og sígarettukveikjarar einungis nefndir í sömu andrá og bílasímar og önnur tæki sem tengst gátu þessu fyrirbæri með ólukkulega nafnið; sígarettukveikjaranum.
Þó að sígarettukveikjarinn sem slíkur sé horfinn úr bílum nútímans þá gætir enn áhrifa hans. Kringlótt form 12-volta tengisins er ein áminning þó svo að það sé á útleið.
12-volta tengi en af hverju kringlótt? Jú, það á sér reykfyllta fortíð!
Undirrituð rakst á vel unnið myndband á YouTube þar sem fjallað er um sígarettukveikjara í bílum og hvernig reykingar voru dásamaðar í „denn“. Hér er það:
Svo má í þessu samhengi vísa á greinina um sögu öskubakkans:
Og auðvitað má benda á umfjöllun um hluti sem voru eitt sinn í bílum:
Aðrar umfjallanir
Kristján Snær Jónsson er ungur bílaáhugamaður af Reykjanesinu. Við hjá Bílablogg.is hittum Kristján Snæ á dögunum en hann var einmitt í aðstoðarmanna teyminu í HERO, rallýkeppni eldri bíla
Góðir hrekkur er gott grín sama hverrar þjóðar fólk er, ekki satt? Svo framarlega sem hrekkurinn er ekki meiðandi. Hér er hrikalega hallærislegur og einfaldur hrekkur sem er samt fyndinn í kjánaskap sínum.
Ef horft er á lista yfir söluhæstu bílana í Evrópu árið 2018 og þá kemur í ljós að á eftir Volkswagen Golf kemur fram ein gerð: Skoda Octavia.
Það er sko hægt að gera ýmislegt á mótorhjólum, enda allar leiðir færar þeim sem vel eru hjólandi. Hér er myndband sem var einu sinni nýtt. En það er langt síðan og það er í góðu lagi. Þetta er margverðlaunuð auglýsing frá 2010 fyrir BMW S 1000 RR og það sem ökumaðurinn gerir…