Íslenskir hestar, selur og Land Rover
Hingað til lands koma bílablaðamenn og allar gerðir bílafólks til að aka hinum ýmsu gerðum bíla við spennandi aðstæður. Hvar er allra veðra von? Jú, á Íslandi. Besta veðrið? Versta? Allt á sama stað og ekki dregur úr ánægjunni hve fagurt er um að litast á Íslandi.
Það sem undirritaðri þykir einna áhugaverðast er að Antoine Elizabé sér um leikstjórn, akstur, myndatöku (að mestu) og klippingu. Það er snjallt!
Driving Evolution og Land Rover í Frakklandi komu að þessum leiðangri og er útkoman áhugaverð eins og sést í myndbandinu: Eldur, ís, ár, drulla, hraun, hestar, selir og það er nú aldeilis eitthvað!
Tengt efni:
Aðrar umfjallanir
Nýr Ford Bronco Sport þykir spennandi bíll og það bíða margir hérlendis eftir bílnum og heyra meira af kostum hans og göllum. Autoblog-vefurinn tók...
Þegar David MacNeil keypti Ferrari 250 GTO 1963 árið 2018, greiddi hann 70 milljónir dollara fyrir bílinn, sem varð í raun dýrasti bíll í heimi. Sjaldgæft eintak - með aðeins...
Marilyn Monroe var ekki ein þeirra sem gortaði af stórum bílaflota. Nei, hún keypti aðeins einn bíl á ævinni og það var enginn smá kaggi; Ford Thunderbird ´56.
Seinni vika Dakar-rallsins hófst á sunnudaginn, sem þýðir að nú eru bara fáeinir dagar eftir. Eitt og annað hefur gengið á í fyrri viku keppninnar en sem betur fer hefur þetta að mestu verið stórslysalaust. Eftir sem áður kemur þyngdarlögmálið mönnum aftur og aftur í opna skjöldu