Hinn nýi Renault 4 kemur 17. október
Renault endurheimtir hinn goðsagnakennda fjölskyldubíl sinn en nú með rafmagni
Á bílasýningunni í París 2022 verður mögulegt tað skoða væntanlegan Renault 4 í fyrsta sinn. Eftir tveggja ára hlé er sýningin að snúa aftur í þessum mánuði og má segja að marki upphaf á „endurfæðingu“ á þessu franska bílanafni.
Renault hefur sent frá sér nægilega mikið af kynningarefni til að ljóst sé að nýi 4 muni líkjast forveranum í útliti.
Bíllinn sem frumsýndur verður í París 17. október verður þó ekki endanleg útgáfa, heldur hugmyndabíll sem gefur skýrar vísbendingar um hugsanlega framleiðslugerð.
Af skyggðu kynningarmyndinni getum við séð útlínur sýningarbílsins að framan. Hagnýtur kassi á þakinu sést vel, sem og stafrænu hliðarspeglarnir, upphækkuð fjöðrun og breiðari hjólaskálar.
Einnig má sjá rétthyrnt grillið með kringlótt aðalljós – vísun til upprunalega Renault 4 sem við gerum ráð fyrir að framleiðslubíllinn fái að láni.
Skuggamynd af nýja Renault 4 séð frá hlið
Upprunalegur Renault 4 var með framleiðslutíma sem spannaði 31 ár og á þeim tíma seldust meira en átta milljónir. Hann var hannaður til að bregðast við Citroen 2CV til að bjóða upp á einfaldan, hagnýtan og ódýran flutningsmáta fyrir vaxandi fjölda bílaeigenda á sjöunda áratugnum.
Myndir af fyrirhugaðri hönnun Renault 4 hafa einnig sést á veraldarvefnum, sem og ný útgáfa af Renault lógóinu með númerinu 4, sem rennir stoðum undir sögusagnir um að framleiðslumódel sé á leiðinni.
Miðað við þessar myndir mun Renault 4 halda fjölmörgum hönnunaratriðum upprunalega bílsins; hann deilir kassalögun klassíska bílsins, kringlóttum framljósum og uppréttum framendanum.
Framleiðslugerð nýja Renault 4 er talin einbeita sér að sama sess og frægur forveri hans, en með raforku. Hann ætti líka að vera hagnýtari en núverandi rafbílar Renault, með stóru farangursrými, afgerandi farþegarými og hugsanlega svigrúmi fyrir sendibílsútfærslu. Með þessum myndum hefur Auto Express tekist að gefa vísbendingu um hvernig fullbúinn bíllinn gæti litið út.
Nýr Renault 4 er liður í sókn framleiðandans í átt að rafvæðingu; Renault hefur þegar sett á markað glænýja, hrein-rafmagnaða Megane og segir að fyrirtækið muni kynna alls 10 nýja rafbíla fyrir árið 2025 - þar á meðal nýjan Scenic árið 2024. Sjö þeirra verða Renault og hinir þrír líklega Alpine-gerðir, þar sem sportbílamerkið færist yfir í fulla rafvæðingu frá 2024.
Framkvæmdastjóri vörumerkisins, Luca De Meo, staðfesti nýlega við Auto Express að fleiri gerðir í framtíðarlínunni myndu sækja innblástur til gerða fortíðar eftir góðar viðtökur á Renault 5 frumgerðinni. „Það hafa svo margar vörur slegið í gegn í sögunni, svo það væri leitt að tengjast ekki aftur þeirri löngu sögu og hefð.“
Nýr Renault 4: grunnur og aflrás
Þegar upprunalegi R5 var sett á markað fékk hann vélbúnaðinn að láni frá R4. Að þessu sinni er þó búist við að hlutverkunum sé snúið við. Búist er við að væntanlegur Renault 4 muni nota sama CMF-BEV grunn og hlaðbakurinn til að hjálpa til við að halda kostnaði niðri.
Hér er önnur mynd af nýja Renault 4 – að aftan. Mynd frá Auto Express.
Hefð er fyrir að R4 hafi verið verðlagður aðeins undir R5, en þar sem kostnaður við tæknina er sá sami þá má búast við að Renault stefni að svipuðu verði fyrir „retró-tvíbura“ sína. Renault gefur í skyn að verðið sé undir 3,3 milljónum króna fyrir R5, .
(frétt á vef Auto Express – myndir frá Renault og Auto Express)
Fleira um Renault 4:
Aðrar umfjallanir
Það má með sanni segja að þessi dagsetning, 4. ágúst, sé þrungin merkingu í huga einhverra sem vel þekkja til sögu hljómsveitarinnar Led Zeppelin. Þá einkum og sér í lagi í huga söngvarans sjálfs, Roberts Plant. Þennan dag, 1975, breyttist margt.
Ég er búinn að bíða spenntur eftir þessari heimildamynd en oft þegar svo er verð ég fyrir vonbrigðum. Það urðu engin vonbrigði í dag, þvert á móti.
Oftar en ekki er sú mynd dregin upp í hálfgerðu háði að lögreglumenn í Bandaríkjunum séu stöðugt japlandi á kleinuhringjum. Það er ástæða fyrir þessu en myndin er nú orðin býsna bjöguð. Hér er stuttlega rakið hvernig samband kleinuhringja og lögreglu er til komið.