Musk segir að Pepsi muni taka á móti fyrstu Semi vörubílum Tesla í desember
Loks eru Semi-trukkar Tesla komnir með dagsetningu á afhendingu
Samkvæmt frétt Reuters er Tesla að hefja framleiðslu á „Semi” rafknúnum vörubílum og PepsiCo Inc mun fá fyrstu bílana afhenta þann 1. desember, tísti Elon Musk, yfirmaður rafbílaframleiðandans, á fimmtudaginn.
Musk segir að Pepsi muni taka á móti fyrstu Semi vörubílum Tesla í desember
Þegar Musk afhjúpaði frumgerð framúrstefnulegra, rafhlöðuknúinna „Semi“-trukka árið 2017 sagði hann að Class 8 vörubíllinn myndi fara í framleiðslu árið 2019. Bandaríkjamenn skilgreina átján hjóla flutningabíla, dráttarbíla með eftirvagni, sem „semitrailer“ eða bara „semi“.
Í öðru tísti ítrekaði Musk að drægni bílsins sé 800 km. Ekki var strax ljóst hversu marga „Semi“-vörubíla rafbílaframleiðandinn ætlar að framleiða.
Búist er við að vörubíllinn muni kosta 180.000 dollara (um 25,9 milljónir ISK), þó að hann gæti fengið allt að 40.000 dollara skattaívilnun samkvæmt bandarískri styrkjaáætlun sem öldungadeildin samþykkti.
Árið 2017 tók PepsiCo frá 100 af rafknúnum Semi-vörubílum Tesla þar sem það reyndi að draga úr eldsneytiskostnaði og losun mengunar frá bílaflotanum.
Ramon Laguarta, yfirmaður PepsiCo, sagði í viðtali við CNBC á síðasta ári að flutningar væru 10% af efnalosun fyrirtækisins.
Þessu tengt:
Aðrar umfjallanir
Hér er sérdeilis langur Range Rover HSE P400. Hann er 75 sentímetrum lengri en hefðbundni bíllinn og 8 sentímetrum hærri. Að innan er hann, tjah, hvað getur maður sagt? Öðruvísi?
Polestar er bifreiðamerki í sameiginlegri eigu Volvo Car Group og móðurfyrirtækis þess, Geely Auto Group í Hangzhou í Kína...
Minnug þess hve óskaplega flottur bíll og töff Honda Civic Type R þótti þegar hann kom, getur maður varla ógrátandi skoðað þróunina á útliti blessaðs bílsins. Nú hefur 2023 árgerð þessa magnaða ökutækis verið kynnt og kannski er von.