Ekið fram af fjallsbrún
Það er ekki sérlega langt síðan að Volvo lét nokkra splunkunýja bíla falla niður úr krana sem hífði bílana í nokkra hæð. Sá gjörningur var fyrst og fremst til að kanna áhrif slíks falls á skemmdir en einnig til að rannsaka áhrif fallsins á ökumann og farþega.
Frá Volvo droppinu.
Hér á landi hefur það tíðkast að gera upp gamla bíla og svo hefur landinn notið þess að sjá þá aka um á þjóðhátíðardaginn – við höfum lítið verið í að keyra þá fram af fjallsbrúnum.
Í Alaska í Bandaríkjum Norður-Ameríku gera menn sér þetta hins vegar til skemmtunar.
Undanfarin ár hefur það verið fastur viðburður þar á bæ að aka bílum fram af fjallsbrún og sjá hvernig sumir bílar fljúga ansi vel en aðrir hrynja í sundur áður en þeir koma niður.
Undirrituðum datt helst í hug keppni í skíðastökki með bílum í stað mannvera.
Það eru nokkrir kaggar þarna sem bera af í flugtækninni. Þarna flýgur til dæmis einn ágætur PT Cruiser ansi vel, Ford Econoline með tengivagn og drekkhlaðnir pikkuppar fá að fljúga líka. Einnig má sjá ódrepandi vélsleða fljúga fram af brúninni en hann gekki í rúmar fimm mínútur eftir giggið.
Tengdar greinar:
Aðrar umfjallanir
Mulliner deildin hjá Bentley kláraði tvo sérsmíðaða bíla sem gátu ekki verið meira öðruvísi. Deildin kláraði fyrsta...
Margir voru farnir að hlakka til bílasýningarinnar góðu í Genf sem átti að halda í febrúar 2022. Þar á meðal við hér á Bílabloggi. Nú hefur sýningunni verið frestað um heilt ár.
Á meðan Chevrolet var til sölu hjá Bílabúð Benna var smábíllinn Spark vinsæll meðal kaupenda; lítill snaggaralegur bíll með dágott notagildi. En nú er hann að renna sitt skeið á enda í Bandaríkjunum líka.
Á rafbílasíðu á Facebook vísaði einhver til kurteisisvenja á hleðslustöðvum. Það er sniðugt að skoða þessi mál aðeins, enda ómögulegt að frumskógarlögmálið ríki þegar allir eru að reyna að gera jarðarkúluna að betri stað til að búa á.