Bee Gees: Ekki platínuplata heldur platínubíll
Þegar plata Bee Gees, Saturday Night Fever, hafði selst í milljónum eintaka í Bandaríkjunum árið 1978, fengu þeir ekki platínuplötu. Þeir fengu Cadillac Fleetwood Brougham. Sá bíll virðist reyndar hafa gufað upp…
Myndin sem birtist í Dagblaðinu vorið 1978
„Þegar stór plata hefur selzt í einni milljón eintaka í Bandaríkjunum eru flytjendurnir sæmdir platínuplötu að launum. Útgefandi Saturday Night Fever hefði þurft að punga út tíu plötum handa Bee Gees, þegar platan náði tíu milljón eintaka markinu. Hann gat ómögulega staðið í slíkum plötuaustri en sæmdi þá í staðinn Cadillac bifreið — úr platínu að sjálfsögðu,“ sagði í Dagblaðinu þann 29. apríl 1978.
Bee Gees voru á hátindi lukkunnar og plöturnar þeirra seldust í bíl- og flugvélaförmum árin 1977 og 1978. Þá kom að þessu óumflýjanlega: Þeir áttu að fá platínuplötu. Hvort þeir fengu slíka plötu eður ei þá er nú kjarni málsins sá að útgefandi þeirra, Robert Stigwood, gaf þeim fyrrnefndan Cadillac.
Auðvitað kemur sú spurning fyrst upp í kollinn hvar téður bíll sé nú niðurkominn. Það er býsna góð spurning. Svo góð að við henni er ekkert svar, eftir því sem undirrituð kemst næst. Enginn „Gibbanna“ mun hafa haldið bílnum.
Gibbbræðurnir (þrjú b í því) árið 1977. Mynd/Wikipedia
Nú, ef svo ólíklega vill til að einhver hér á landi lumi á upplýsingum um „platínubílinn“ þá væri það nú aldeilis gaman en kannski var þetta bara platbíll. Hvað veit maður?
Fleira poppað, gleymt eða týnt:
Aðrar umfjallanir
Þeir eru allnokkrir litirnir á þessum Lamborghini sem þó er að hluta „pakkaður inn“ fyrir flutning. Ætli þeir séu fleiri?
Flestir sem fylgjast með bílamarkaði í dag vita að Fiat á Ítalíu er í dag hluti af Stellantis samsteypunni eftir að...
Volvo hefur í hyggju samstarf við sænska rafhlöðuframleiðandann Northvolt um að koma á nýrri risaverksmiðju fyrir Evrópumarkað. Verksmiðjan mun...
Frumsýningar bílanna í Formúlu 1 eru afstaðnar og prófanir hafnar. Eitthvað eru sumir bílarnir nú öðruvísi en þeir sem liðin sýndu á sínum tíma. Mestu munar á bíl Red Bull.