Lexus smíðaði rafbíl með „tilbúinni“ beinskiptingu
Fyrirtækið setti þessa nýju „skiptingu“ í UX crossover – en vekur ekki hrifningu hjá öllum
Beinskiptingin er nánast horfin. Jafnvel ef þú hunsar að beinskiptir bílar eru innan við 2 prósent af bílamarkaðnum í dag í Bandaríkjunum, þá verður þú að sætta þig við að umskiptin yfir í rafbíla munu líklega leiða til endaloka á því að við séum sjálf að skipta um gír segir bandaríski bílvefur Car and Driver.
Toyota vill breyta því og þess vegna sýnir fyrirtækið frumgerð rafbíls með „tilbúinni“ handskiptingu á gírum.
Fyrirtækið hefur eytt síðustu dögum í að sýna evrópskum blaðamönnum sérstaka útgáfu af Lexus UX 300e.
Vídeósem sýnir þessa tilbúnu skiptingu í rafbíl
![image](https://img.bilaskra.is/images/1672605653_6392840033011881049_26231557807415535.jpg)
Hér má sjá ökumann vera að „skipta um gír“ með þessari tilbúnu handskiptingu, en vinstra megin má sjá bílinn sem er með þessari nýju „skiptingu“.
Rafbílar hafa sjaldan fleiri en einn eða tvo gíra áfram, svo það er ólíklegt að þetta sé gagnleg tækni fyrir almenna rafbíla í framtíðinni.
En Lexus segist vera að þróa hugmyndina til að búa til meira grípandi rafbíla og gæti í raun notað kerfið á framleiðslurafbíl ef þróunarvinnan lofar góðu.
Við erum ekki viss um að eftirlíking á skiptingu gæti nokkurn tíma náð að leysa áhugann á skiptingu í rafbíll, segir Car and Driver, en þeir segjast vissulega hafa áhuga á að prófa það.
En þetta gæti komið í framleiðslu – ef marka má fréttir frá Toyota
Meðan á útgáfu beinskiptu útgáfunnar af GR Supra var að ræða var Toyota að nota myllumerkið „savethemanuals“. En svo virðist sem þetta hafi snúist um miklu meira en bara að vera með nokkra sportbíla - japanski bílarisinn vill virkilega að handskiptingar séu málið, ekki bara á lokaárum bíla með brunavélum, heldur víðar.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1672605654_6039519963080640887_26231559353685785.jpg)
Electrified Sport hugmyndabíllinn – gæti komið í framleiðslu árið 2030.
Yfirverkfræðingur Lexus, Takashi Watanabe, sem stjórnaði smíði á hugmyndabílnum Lexus Electrified Sport Concept, hefur þetta að segja um skiptinguna:
En ökumaðurinn er fær um að upplifa allar tilfinningar beinskipts ökutækis.
Þetta er hugbúnaðarbundið kerfi, svo það er hægt að forrita það til að endurskapa akstursupplifun mismunandi ökutækja, sem gerir ökumanni kleift að velja valinn akstursmáta“.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1672605656_1231632042968924616_26231560968481021.jpg)
Electrified Sport hugmyndabíllinn
Þegar er búið að sýna Electrified Sport hugmyndabílinn, er búist við að framleiðsluútgáfan af þessum eiginlega LFA arftaka komi árið 2030.
„Ég get ekki sagt þér hvenær við munum setja á markað framleiðslubíl sem byggir á Electrified Sport. En ég get staðfest að við erum að vinna í því. Þetta er ekki bara hönnunarhugmynd. Bílnum er ætlað að verða að veruleika“.
(vefsíður INSIDEEVs, Carscoops og Car and Driver)
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1639075206_1294258459061114402_6649806183711280.jpg)
Virðing Max Verstappens fyrir andstæðingi sínum, Lewis Hamilton og keppnisliði hans, hefur minnkað mikið á þessu keppnistímabili. Það viðurkennir Max fúslega í samtali við blaðamann ESPN.
![](https://img.bilaskra.is/images/1661640007_7929887382250051657_15265912448785200.jpg)
Fornvélasýningin Wings´n Wheels fór fram á Tungubökkum í tíunda skiptið laugardaginn 27. ágúst 2022 frá 12-17.
![](https://img.bilaskra.is/images/1612442962_4143214966954586553_4384558749000.jpg)
Nú liggur fyrir hvaða bíll er „bíll ársins 2020“ í Þýskalandi, en það er hinn nýi PorscheTaycan...
![](https://img.bilaskra.is/images/1659163207_7506008166357067051_12789111715058986.jpg)
Maður verður eiginlega pínu móðgaður þegar kemur í ljós að bílaframleiðandinn sem er á stalli í huga manns framleiðir eitthvað allt annað en bíla – svona hálfpartinn í laumi. Þannig leið mér þegar ég áttaði mig á að BMW er að „paufast“ við að búa til BOBSLEÐA þegar ég sé ekki til.