Cadillac Celestiq er þegar uppseldur í allt að 18 mánuði
Tími stóru og flottu bílanna í henni Ameríku er langt frá því liðinn!
Vefurinn TorqueReport fræðir okkur á því að eftirspurnin á nýja Cadillac Selestiq er mun meiri en framboðið!
Meiri eftirspurn en við ráðum við!
Tony Roma, yfirverkfræðingur Cadillac, sagði nýlega við Autoline Network, „við erum nú þegar með töluvert af eftirspurn.
Miklu, miklu meira en við ætlum að geta smíðað á fyrsta ári eða 18 mánuðum.
„Það er stórkostlegt vandamál að við höfum vakið svona mikinn áhuga,“ hélt hann áfram.
Allir handsmíðaðir
Stóra ástæðan fyrir því að 300.000 dollara (42,5 milljónir ISK) Celestiq er þegar uppseldur er sú að rafbíllinn verður handsmíðaður í Global Technical Center GM í Michigan.
(frétt á vef TorqueReport)
Aðrar umfjallanir
Chris Harris (úr Top Gear) á frekar áhugaverðan BMW. Þetta er nefnilega BMW M2 CS, einn af þeim 2.200 sem framleiddir voru. Twin túrbó, þriggja lítra línu sexa, hestöflin eru 406 og af stað nú.
Það er ekki satt að allar löggur elski kleinuhringi – alla vega ekki svona kleinuhringi. Náunginn sem deildi þessu myndbandi upphaflega á Reddit segist búa í Arkansas og þar snjói afar sjaldan. „Kannski tvisvar á ári,“ skrifaði hann og jú, þarna kom dálítil föl.
BL hefur tekið við umboði fyrir rafknúin farartæki frá spænska fyrirtækinu Invicta Electric sem selur mismunandi gerðir 100% rafdrifinna fólks- og sendibíla...
Sá sem þetta skrifar hefur oft verið spurður að því hvaða bíll sé sá flottasti sem af þeim bílum sem eru minnisstæðir frá 47 ára tímabili sem bílablaðamaður...