Nýtt útlit hjá Porsche
2024 Porsche 718 Boxster og Cayman “Style Editons” opinberaðar
“Ruby Star Neo” er stjörnuliturinn fyrir þessa sérstaka gerð
Porsche var að kyna nýtt útlit og djarfan lit á bílunum sínum, og segir að “718 Style Edition” verði fáanlegur árið 2024 núna, ekki 2023 eins og áður hafði verið sagt.
Það sem gerir Style Edition einstaka frá öðrum 718-bílum, ef það var ekki augljóst þegar, er útlitið.
Sem staðalbúnað færðu 20 tommu 718 Spyder felgurnar málaðar í svörtum háglans og með lituðum Porsche-merkjum. Eins og sést er Cayman á myndunum með þessar svörtu felgur, en hægt er að velja Style Edition „andstæða pakka“ sem málar hjólin í háglans hvítu í staðinn. Þessi pakki inniheldur einnig skrautlegar hvítar rendur á húddinu, hvítt „Porsche“ merki á hliðinni og gerðarnafnið í gljáandi hvítu.
Skoðum hvað er staðlað, púströrin eru í svörtu og „Porsche“ áletrunin að aftan er í háglans silfri.
Ef þú velur Boxster færðu líka „Boxster“ merkingu upphleypta í blæjutoppinn. Svo er það glæsilega bleika málningin á Boxster - þetta er nútímaleg túlkun á „Ruby Star 964 Carrera RS (eins og sést á bak við á myndinni hér efst).
Hvað varðar búnað og tækni fyrir Style Editions setti Porsche saman pakka af valkostum sem eru staðalbúnaður.
Þar á meðal eru sportpúströr, kraftmikil Bi-Xenon framljós (PDLS), hliðarspeglar og baksýnisspeglar með sjálfvirkri dimmingu, hita í stýri, Porsche merki upphleypt í höfuðpúða, upplýstar hurðarsylluhlífar úr ryðfríu stáli, stöðuskynjarar að framan/aftan og tveggja svæða, sjálfvirkt loftfrískunarkerfi.
(frétt á vef Autoblog)
Aðrar umfjallanir
Þá er hann kominn, Nissan Ariya, alveg nýr, hreinn rafmagns sportjeppa frá fyrirtækinu sem gjörbylti fjölskyldubílamarkaðnum...
Er hægt að aka eftir leiðsögukerfi sem ekki er tengt staðsetningarbúnaði? Hér er slíkt kerfi frá áttunda áratugnum skoðað. Mjög áhugavert og tjah, mögnuð hugmynd?
VW og Porsche hafa í gegnum tíðina átt í samstarfi. Seint á sjöunda áratugnum lá það þannig við að bæði VW og Porsche vantaði nýjar gerðir sportbíls...
Núna gengur ein mesta ferðahelgi ársins í garð og margir leggja upp með eftirvagna í eftirdragi. Allir stærri vagnar eru með sitt eigið hemlakerfi sem grípur inn um leið og bíllinn...