Koji Sato, verðandi forstjóri Toyota, verður að fara yfir í hreina orku
Undir stjórn Akio Toyoda hefur bílaframleiðandinn fylgt hægfara nálgun á rafbílum
TOKYO – Reuters – Koji Sato, sem á fimmtudaginn var útnefndur framtíðarforstjóri japanska bílaframleiðandans Toyota Motor Corp, er verkfræðingur með bakgrunn í dísilvélum sem mun fá það verkefni að stjórna umskiptum fyrirtækisins yfir í hreina orku.
Undir stjórn Akio Toyoda hefur bílaframleiðandinn fylgt hægfara nálgun rafknúinna farartækja og haldið því fram að tvinntæknin sem hann var brautryðjandi í með Prius verði áfram mikilvæg ásamt fjárfestingum í vetni.
Sato lærði um díselvélar í háskóla og gekk til liðs við Toyota í von um að „leggja sitt af mörkum til samfélagsins með því að skapa framtíð dísilvéla,“ að því er fram kemur í viðtali á vefsíðu Gazoo, bílasportvörumerkis Toyota.
Sato, til vinstri ásamt Akio Toyoda fráfarandi forstjóra Toyota í ökuferðinni í Taílandi.
„Ég get ímyndað mér að Akio hafi talið að nú sé kominn tími til að breyta til svo eftirmaður hans geti stýrt skipinu í gegnum óvissuna sem fram undan er."
Sato hefur gegnt stöðu forseta Lexus International og Gazoo Racing Company síðan 2020.
Koji Sato (til vinstri), sem var útnefndur sem nýr forstjóri Toyota, og Akio Toyoda, sem verður stjórnarformaður Toyota, mæta á Tokyo Auto Salon 2023 á Makuhari Messe í Chiba fyrr í þessum mánuði. | Mynd REUTERS.
„Bílafyrirtæki lifa og deyja með framleiðsluþróun sinni. Við stöndum frammi fyrir því að bílar Toyota eru að breytast".
Ein helsta ástæða þess að Sato var kjörinn arftaki, var ást hans á að búa til bíla, sagði Toyoda í opinberu tilkynningunni sem var send út á netinu.
Þessi ástríðu var augljós í stuttu myndbandi sem var birt árið 2021, þar sem Sato situr við hlið Toyoda þegar þeir prufukeyra Lexus. Þegar Toyoda gefur inn, sést Sato með breitt glott og hlær af og til. Greinilega ánægður með yfirmann sinn.
Vídeó frá prufuakstri Toyoda og Sato á Lexus
Aðrar umfjallanir
Við höfuð öðru hvoru fjallað um Ineos Grenadier-jeppann sem mun líkjast eldri gerð Land-Rover, en núna koma nýjar fréttir af þeim bæ...
Byggður á grunni Fiesta. Nýr Kuga einnig á leiðinni.
Hann var um ársgamall þegar hann byrjaði að tala. Og hann talaði bara um bíla. Sex ára gamall bað Patch Hurty bílaframleiðendendur um bílamerki því hann var að safna þeim. Viðbrögðin voru einfaldlega stórkostleg!
Hér er ekki fjallað um ömmu heldur er þetta um konu sem heitir Amma. Reyndar er hún amma, enda orðin 71 árs og ekkert undarlegt við það að Amma sé orðin amma. En Amma er mögnuð! Hún ekur risastórum vinnuvélum og er með réttindi til að stjórna 11 gerðum farartækja.