2021 árgerð Hyundai Santa Fe fær nýtt útlit
Þrátt fyrri mikla stöðvun í bílaheiminum að undaförnu eru þó farnar að berast fréttir af nýjungum sem eru á döfinni.
Lykillinn á breytingunum er nýtt grill á Hyundai sem markar fyrsta stóra skrefið frá hönnuninni sem hefur þróast undanfarinn áratug - alveg til breiðs útlits nýju Sonata fólksbifreiðar, nýja i30 (áður Elantra ) og andlitslyftingunni á i30.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612441362_5531818200131518658_2784796850000.jpg)
Í nýrri gerð sinni nær Hyundai grillgrindin yfir framendann á Santa Fe og er aðeins dregið saman á hvorum enda til að renna saman við umbúnað aðaljósanna.
Annað nýtt eru dagljósin á Santa Fe árgerð 2021, lýst sem „T“ löguðum.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612441363_6059817771829814889_2785354247000.jpg)
Þessari nýju lýsingu er lýst sem hún endurspegli „nýja samþætta útlitshönnun Hyundai“ og bendir til þess að við ættum að búast við því að sjá svipað birtast á framtíðar gerðum og andlitslyftingum, að mati bílavefsins caradvice, svo dæmi sé tekið.
Engin önnur sjónarhorn hafa komið fram enn þá, þó Hyundai segist búast við „uppfærslum á innanhússhönnun sem eru fallegar og veita þægindi“.
Einnig eru óljósar upplýsingar um vélræna pakkann í Santa Fe, en það skýrist örugglega fljótlega.
Miðað við fréttir á bílavefsíðum mun nýja útlitið Santa Fe mun koma á markað í Evrópu frá september og bendir til að við gætum séð bílinn afhjúpaðann hvenær sem er á næstu mánuðum.
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1612440682_8482505092076812964_2104211666000.jpg)
Á góðviðris fimmtudagskvöldum mæta flottir bílar af öllum gerðum og stærðum, þar sem eigendur þeirra deila bæði sögum og njóta góðs félagsskapar...
![](https://img.bilaskra.is/images/1651430405_6187718121166395174_5056309971450165.jpg)
Aðalmál Ford með F-150 Lightning hingað til virðist vera „lofa minna – afhenda meira“ („Under-promise, over-deliver“)...
![](https://img.bilaskra.is/images/1669880409_6490524739094884562_23506314436805013.jpg)
VW seldi 17.155 eintök af Golf á Evrópu, næstum tvöfalt magn hans í sama mánuði í fyrra...
![](https://img.bilaskra.is/images/1612444253_1631708541781908118_5675349572000.jpg)
2020 Cadillac CT5 – lúxusfólksbíll í millistærð kynntur, og það er nægt turbóafl til staðar, en hin raunverulega frumsýning verður á alþjóðlegu bílasýningunni í New York í næsta mánuði.