BMW X2 mun fá uppfært útlit – tengitvinngerð væntanleg
- X2 fær útlitsbreytingar í takt við andlitslyftingu X1
- Væntanlega minni háttar breytingar á innréttingu og meiri tækni
- Mögulega frumsýndur síðar á þessu ári
Lítið er um fréttir af nýjum bílum þessa dagana, en ýmsar bílavefsíður hafa birt fréttir um að BMW X2 muni fá endurnýjun núna á miðju aldursskeiði sínu og hafa birt njósnamyndir af bílnum þessu til staðfestingar. Bíllinn mun fá uppfærslu á útlit og uppfærða tækni og það mun endurspegla nýlegar breytingar á BMW X1.
Reiknað er með bílnum í sölu á næsta ári
Í umfjöllun á þessum erlendu vefsíðum er reiknað með að sjá nýja X2 í sýningarsölum á næsta ári. X2 er coupé-útgáfa af X1 og er minnsti jeppi BMW sem er í samkeppni við Mercedes GLA, Audi Q2, Volvo XC40 og MINI Countryman.
Minni breytingar í innanrými en möguleiki á meiri tækni
Stóru fréttirnar samkvæmt þessu vefmiðlum varðandi innanrýmið eru að iDrive upplýsinga- og afþreyingarkerfið er líklega með virkni á snertiskjá í fyrsta skipti. Þar fyrir utan er talið að BMW takmarki allar breytingar inni í bílnum við ný áklæði og frágang en möguleiki er á að meiri öryggisbúnaður og aðstoðarkerfi ökumanna verði fáanleg.
Aðrar umfjallanir
Að troða George Russell inn í Peel P50 bílkríli er auðvitað góð hugmynd. Formúluökumaðurinn Russell tók áskorun Johnnys Herbert, fréttamanns á Sky Sports F1, sem fólst í kappakstri á sérkennilegum bílum á Silverstonebrautinni.
Fyrst enginn er múrinn þarf Kaninn ekki múrbrjót eða margar skóflur til að komast yfir (eða undir) landamærin með fornbílana sína til uppgerðar. Málið er að það er mun ódýrara og svo segja menn að handbragðið sé með eindæmum gott og verkið unnið á nokkuð eðlilegum hraða.
Það vakti nokkra athygli um helgina að Rod Stewart væri í vegavinnu. Hann er ekki kominn í bæjarvinnuna heldur er vill hann geta ekið sínum Ferrari um göturnar án þess að skemmdir hljótist af. „Fyrst enginn ætlar að laga þetta þá geri ég það,“ sagði hann á Instagram.
Eins og útlit var fyrir gekk Sébastien Loeb ekkert að halda sig fjarri WRC rallinu. Nú hefur M-Sport tilkynnt að Loeb og Adrien Fourmaux muni keppa í sumar á Ford Puma Hybrid Rally 1 .