Falleg hönnun og gríðarlegur kraftur
Sara Sigmundsdóttir er nýr fulltrúi vörmerkis Volkswagen.
Sara sem er eins og flestir vita ein fremsta Crossfit stjarna heims landaði þessum glæsilega samningi nú í vikunni.
Draumabíll Söru Sigmundsdóttur, VW T-Roc R.
Jost Capito framkvæmdastjóri Volkswagen R teymisins segir að metnaður Söru sé ótrúlegur og árangur hennar í íþróttum endurspegli kjarna hönnunar og virkni Volkswagen R.
Sara býr í Njarðvíkunum og segist vera mjög stolt af því að fá að vinna með Volkswagen. Draumabíll Söru er Volkswagen T-Roc R. „Ég áttaði mig strax þegar ég settist inn í þennan bíla að þetta var bíll drauma minna" sagði Sara.
Við óskum Söru innilega til hamingju með árangurinn.
Aðrar umfjallanir
Nýjar „njósnamyndir“ af Porsche Taycan benda til þess að andlitslyfting muni koma á þessu ári...
Hér á Spáni eru fornbílar og glæsivagnar mjög í hávegum hafðir og starfræktir eru bílaklúbbar þar sem eigendur slíkar bíla hittast reglulega, sýna sig og sýna bíla...
Toyota hefur staðfest að það muni smíða nýjan smábíl sinn sem verður svipaður Aygo X hugmyndabílnum í verksmiðju sinni í Kolin í Tékklandi...
Jeep hefur tilkynnt um uppfærslur á 2023 Jeep Cherokee