Litlir og sérstakir hugmyndabílar frá Daihatsu á bílasýningu í Tókýó
-birtast á Tokyo Auto Salon eftir viku, 10. til 12. janúar
Í marga áratugi, eða allt frá lokum heimstyrjaldarinnar síðari, hafa smábílar, svonefndir kei-bílar, verið allsráðandi á markaði fyrir minni bíla á Japansmarkaði.
Upphaflega urðu kei-bílarnir til vegna takamarkana á efni til bílasmíði, en á síðari árum er þetta orðið að „lífsmáta“ meðal Japana, ekki síst vegna mikillar umferðar og lítils pláss, jafnt á götum sem og bílasmíði.
Autoblog segir okkur frá því að enn sé mikil þróun í gerð þessara bíla – bíla sem við munum lítið sjá hér á Vesturlöndum, en ávallt gaman að skoða, og núna vegna bílasýningar fyrir heimamarkaðinn, Tokyo Auto Salon sem opnar eftir viku.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612442688_8265444263917188148_4110929850000.jpg)
Daihatsu Taft – skemmtileg hugmynd að smájeppa
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612442689_4977148600872783976_4111997054000.jpg)
Glerþakið í Taft opnar nýjar víddir
Núna er röðin komin að Daihatsu
Daihatsu mun sýna níu hugmyndabíla á sínu sýningarsvæði á Tokyo Auto Salon 2020, með margvíslegum áherslum. Mikilvægasti er Taft, sem tekur Daihatsu Waku Waku hugmyndina sem sýnd var á bílasýningunni í Tókýó í ár nær framleiðsluútgáfu næsta árs.
Árið 1974 sendi Daihatsu frá sér lítinn smájeppa, 4x4, sem kallaður var Taft, en það er skammstöfun fyrir „Tall & Almighty Four-Wheel Touring“ bifreið. Endurfæðing nafnsins á kei-bíl sem Daihatsu setur fram sem „fyrsta létta crossover í heimi“, og kemur staðalbúinn með framhjóladrifi og CVT-skiptingu, nauðsynlega þarf að breyta skammstöfuninni til að mæta „Tall & Almighty Fun Tool“.
Útlitið á Waku Waku kemur hér aftur á þessum nýja Taft með panorama þaki í stað geymslusvæðisins ofan á Waku Waku, afturhurðir og gluggar í stað appelsínugulra áfelluspjalda og „bensínbrúsaútliti“, hefðbundnari framendi framhlíf og minni klæðninguar
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612442691_5834546289662090587_4113094856000.jpg)
Daitatsu Tanto – fyrir fjölskylduna á ferð
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612442692_5236877237085911042_4114173708000.jpg)
Daihatsu Tanto Custom Premium
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612442693_1679783942788278007_4115323931000.jpg)
Daihatsu Tanto Marvel Spider-man
Þrír Tanto-bílar
Þrír Tanto kei bílar munu birtast í þremur mjög svo ólíkum búningum með þremur mismunandi framendum.
Vegna þess að engin bílasýning getur verið án þess að sýna ígildi jeppa, er hér líka „Tanto Cross Field“ hugmyndabíll „Virkur búnaður sem þú getur reitt þig fyrir fjölskylduna þína“, en búnaðurinn virðist vera þakrekki og mengi þokuljósa.
Allt sem við vitum um „Tanto Custom Premium“ er að það „gefur frá sér yfirgnæfandi nærveru með óttalausu svörtu andliti“ sem virðist hafa tekið beint frá hönnun á Toyota Prius og Mirai, en það kemur ekki alveg á óvart þar sem Toyota á Daihatsu. „Tanto Marvel Spider-Man“ hugmyndabíllinn lítur mest út eins og grunngerð Tanto, veggfóðraðar klæðningar með spjöldum úr myndasögu.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612442694_4286451022883710571_4116827384000.jpg)
Og hér er búið að breyta þessum Daihatsu Hijet í bás fyrir plötusnúð
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612442695_8573062075782711022_4117915669000.jpg)
Daihatsu Peaks með klifurvegg á hliðinni
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612442697_2419096366577038163_4119258714000.jpg)
Hatsune Miku Marche hugmyndabíllinn er færanleg „pop-up“ verslun
Þrír Hijet
Þrjár hugmyndir smásendibíla undir heiti Hijet eru hver með sitt persónulega útlit.
Hatsune Miku Marche hugmyndabíllinn er vinnandi kaffibás og „pop-up-verslun“ saman í samvinnu „Vocaloid software voicebank“ þekkt sem Hatsune Miku.
Hönnuðir Hijet Peaks unnu með tímaritinu Peaks við „leikjanlegan jeppling“ með klifurvegg innanhúss sem skreytti hliðarnar. Þar sem Hijet er aðeins um 183 cm á hæð, mun hann ekki bjóða upp á mikið klifur, en Daihatsu mun vera með meira krefjandi klifurnámskeið í básnum fyrir börn frá þriggja til 12 ára. Hijet Jumbo DJ gæti talist risastórt aðsetur fyrir plötusnúð, plötusnúðurinn DJ Kakushika mun koma fram á sýningunni til að spila í rúminu á Hijet.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612442687_5300841059175758501_4109877403000.jpg)
Einn aðeins kunnuglegri – Daihatsu Rocky
Tveir sportarar
Að fylla í hópinn eru tvær framleiðslugerðir: Rocky Sporty Style og Copen GR Sport, sem fær koltrefja útlit á vélarhlíf, spoiler að aftan og svartar felgur og lítur út fyrir að vera „árásargjarnt ökutæki með sportlegan akstur“.
Framleiðslugerðirnar eru búnar ýmsum fylgihlutum.
Allt þetta mun gerast frá 10-12 janúar í Makuhari Messe í Chiba í útjaðri Tokýó.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612442698_4393713290379938741_4120355555000.jpg)
Daihatsu Copen- sportbíll í kei-flokki
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1630748407_6016308204310779606_1953427220936161.jpg)
Yfirlit yfir það helsta sem má búast við að sjá á IAA Mobility sýningunni í München 6. september 2021
![](https://img.bilaskra.is/images/1666820406_3319155869196035627_20446310659235353.jpg)
VW vörumerkið ætlar að hætta framleiðslu bíla með brunahreyfla í Evrópu fyrir árið 2033, fyrr en fyrri markmið fyrirtækisins gáfu til kynna
![](https://img.bilaskra.is/images/1640068809_3638546270743861420_636846814977208.jpg)
Þetta var löng fyrirsögn! Þó hann sé nú ekki hár í loftinu, hann Bottas, er afrekalistinn langur. Þessi finnski Formúlu 1 ökumaður hefur marga fjöruna sopið, margan bikarinn unnið og marga kaffibaunina brennt. Lítum nánar á manninn.
![](https://img.bilaskra.is/images/1673800814_5047553273592157988_27426719429200964.jpg)
Í Bandaríkjunum er hlutdeild bíla sem aðeins nota rafhlöður yfirgnæfandi af bandarískum gerðum